Fotbolti.net
Stefán Marteinn Ólafsson
Stefán Marteinn Ólafsson
Inkasso deildin - 1. deild karla
Rafholtsvöllurinn
Rok og skítaveður
Njarðvík
Njarðvík
1 - 2
Grótta
Grótta
Atli Geir Gunnarsson 32'1 - 01 - 133' Valtýr Már Michaelsson 1 - 259' Pétur Theódór Árnason
Dómari: Einar Ingi Jóhannsson

SKÝRSLAN: Grótta með níu tær upp í Pepsi Max - Njarðvíkingar fallnir

Hvað réði úrslitum?

Liðin spiluðu bæði eins vel og veður leyfði og það var ekki að sjá á heimamönnum að þarna væri lið sem væri í fallbaráttu en Gróttumenn gerðu það sem þurfti og því fara þeir heim með stigin þrjú og sæti í Pepsi Max deildinni er í þeirra höndum fyrir loka umferðina.

Bestu leikmenn

1. Valtýr Már Michaelsson

Var virkilega öflugur í liði Gróttu í dag. Erfiðar aðstæður í dag en hann var virkilega flottur hjá Gróttu í dag. Njarðvíkingar áttu í fullu fangi með hann.

2. Atli Geir Gunnarsson

Var virkilega öflugur í miðverðinum hjá Njarðvík í dag. Skoraði fyrsta mark leiksins og kom í veg fyrir að Gróttumenn hefðu átt auðveldari sigur hér í dag.

Atvikið

Sigurmark Gróttu.
Fór langleiðina með að tryggja Pepsi Max sætið og því ekki hægt að horfa framhjá því.

Hvað þýða úrslitin?

Grótta er með 9 og hálfa tá í Pepsí Max deildinni.
Njarðvíkingar eru því miður fallnir niður í 2.deild.

Vondur dagur

Krystian Wiktorowicz átti erfiðan dag fremst hjá Njarðvík en hann var oft ekki vel staðsettur eða ekki nógu beinskeyttur. Klúðraði líka einn á móti markmanni í stöðunni 1-1 en hann átti ekki góðan dag á skrifstofunni.

Dómarinn - 6

Umdeildar ákvarðanir inn á milli en heilt yfir var þetta ágætlega dæmdur leikur.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.