Fotbolti.net
Árni Þór Grétarsson
2. deild karla
JÁVERK-völlurinn
Úrhelli
Selfoss
Selfoss
4 - 1
Völsungur
Völsungur
Gylfi Dagur Leifsson 19'1 - 0Hrvoje Tokic 55'2 - 0Hrvoje Tokic 67'3 - 03 - 173' Rúnar Þór Brynjarsson Hrvoje Tokic (víti) 87'4 - 1
Dómari: Elías Ingi Árnason
Leik lokið!
Leik lokið. Selfyssingar taka öll stigin sem í boði voru.

Leiknir sigraði á sama tíma Vestra 4-0. Leiknir á toppnum með 43 stig, Vestir næstir með 42 stig og Selfoss í þriðja með 41 stig. Mikil spenna fyrir lokaumferðina sem fram fer á laugardaginn eftir viku.
89. mín
Úrslit þar með ráðin. Bara spurning hvort annað hvort liðið vilji ná sér í eins og eitt mark.
Selfoss
87. mín
Mark úr víti!

Hrvoje Tokic

Það var aldrei spurning, Tokic leggur hann í hliðarnetið. 20 markið hans í sumar.
85. mín
VÍTI!!!! Brotið á Guðmundi við rétt inni í vítateig. Hver ætli taki vítið?
Selfoss
84. mín
InnValdimar Jóhannsson
ÚtIngvi Rafn Óskarsson
82. mín
Leiknir eru að klára Vestra, kominir í 3-0. Eru þar með að hirða efsta sætið af Vestramönnum.
Völsungur
81. mín
InnRafnar Máni Gunnarsson
ÚtAkil Rondel Dexter De Freitas
Selfoss
81. mín
InnIngi Rafn Ingibergsson
ÚtÞór Llorens Þórðarson
Völsungur
76. mín
InnÓfeigur Óskar Stefánsson
ÚtHalldór Mar Einarsson
Völsungur
73. mín
MAAAARK!

Rúnar Þór Brynjarsson (stoðsending: Akil Rondel Dexter De Freitas)

Völsungar ekki alveg hættir. Akil Rondel kemst upp að endamörkum og setur boltann inn á markteig og þar kemst varamaðurinn Rúnar Þór fyrstur í boltann og neglir boltanum í netið.
Völsungur
70. mín
InnRafnar Smárason
ÚtBjarki Baldvinsson
Völsungur
70. mín
InnRúnar Þór Brynjarsson
ÚtSverrir Páll Hjaltested
Selfoss
70. mín
InnÞorsteinn Daníel Þorsteinsson
ÚtÞormar Elvarsson
Selfoss
67. mín
MAAAARK!

Hrvoje Tokic (stoðsending: Þór Llorens Þórðarson)

Ekki búinn að sleppa orðinu. Þór á skot í bakið á varnarmanni Völsunga, lítil hætta af því. En Tokic nær boltanum inná teig og lúðrar honum í netið.
66. mín
Leikurnn hefur róast aftur og lítið um sóknatilburði sem mark er á takandi hjá liðunum.
Selfoss
60. mín
InnGuðmundur Tyrfingsson
ÚtKenan Turudija
56. mín
Á sama tíma skora Leiknismenn og eru komnir yfir gegn Vestra, 1-0.
Selfoss
55. mín
MAAAARK!

Hrvoje Tokic

Þormar vinnur boltan úti á kannti og kemur honum á Tokic sem fíflar varnarmenn Völsunga og setur boltann í netið. Alvöru gæði í þessu.
54. mín
Gylfi Dagur kemur boltanum á Tokic sem nær að pikka boltanum út á Kenan sem nær skotinu framhjá frá vítateigslínu.
52. mín
Þór Llorens með svakalegt skot nokkra metra fyrir utan vítateig og setur boltann hárfínt yfir.
50. mín
Þarna hélt Valdes út í ævintýraferð. En blessunarlega fyrir hann þá endaði þetta ævintýri vel. Selfyssingar náðu ekki að gera sér mat úr þessu úthlaupi.
46. mín
Leikur hafinn
Leikurinn er farinn í gang á ný og nú hafa Völsungar vindinn með sér í liði.
45. mín
Í hinum stórleik umferðarinnar er allt markalaust.
45. mín
Hálfleikur
Fyrri hálfleik líkur með því að Tokic fer illa með frábæra fyrirgjöf Þórs. Hefði átt að stimpla þennan í marki, en missir hann framhjá.
42. mín
Arnar Pálmi á tilraun á mark se Þorkell slær yfir markið. Ekki verður meira úr því.
41. mín
Tokic á hér skalla í utanverða stöngina eftir sendingu inn á teig frá Þormari.
40. mín
Álitleg sokn hjá Selfyssingum. Þór nær fyrirgjöf sem Tokic nær að skalla á mark, en þarf að teygja sig of mikið eftir þessum bolta og enginn kraftur í skalanum sem Valdes grípur létt.
38. mín
Væri hægt að kalla þennan leik hálfleiðinlegan þessa stundina, en við skulum ekki afskrifa hann strax.
34. mín
Elvar liggur hér eftir að hafa fórnað sér fyrir fast skot Kenan. Hann kemur sér þó aftur á fætur. Alvöru fórnfýsi hjá Elvari.
32. mín
Vá, Kaelon átti góðan sprett upp miðjan völinn og á svo skot rétt vinstra megin við markið.
30. mín
leikur liðanna heldur að róast og fleiri sendingar að ganga upp.
27. mín
Már vallarþulur segir okkur að þetta hafi verið fyrsta mark Gylfa Dags í meistaraflokki, óskum honum til hamingju með það.
23. mín
Áfram eru heimamenn aðgangsharðari í þessum leik. Þetta hefur lengst af ekki verið nógu vandað hjá liðinum, en eigum við ekki að kenna rennvotum vellinum um.
Selfoss
19. mín
MAAAARK!

Gylfi Dagur Leifsson (stoðsending: Kenan Turudija )

Kenan átti hörkuskot sem Valdes varði vel, Gylfi Dagur tekur frákastið og rennir boltanum í netið.
18. mín
Völsungur með sína 3. horspyrnu. Hún hepnast ekki betur en svo að Selfyssingar rjúka í hraða sókn en hún var lítt betur hepnuð.
14. mín
Tokic var með allt pláss í heiminum á hægri kantinum, kom boltanum út á Kenan sem setur boltan hárfínt framhjá frá vítateigslínu. Besta færi leiksins til þessa.
8. mín
Arnar Pálmi kominn inn í teig með boltann, fyrirgjöfinni er komið í horn sem ekkert verður úr.
5. mín
Ingvi fær boltann upp í horn þar sem hann á hörku fyrirgjöf sem Tokic er hársbreidd frá því að stanga boltann. Heimamenn heldur frekarari hér í upphafi.
1. mín
Þetta fer líflega í gang, Tokic á hér skot á mark eftir 30 sek. En lítil hætta.
1. mín
Leikur hafinn
Elías Ingi flautar þetta í gang, Völsungur byrjar með boltann.
Fyrir leik
Liðin eru komin út á völl og vallarþulurinn farinn að kynna liðin. Þetta er að skella á!
Fyrir leik
Það hellirigndi hér áðan. það virðist vera stytt upp í bili. Frábærar aðstæður til knattspyrnuiðkunnar.
Fyrir leik
Hinn stórleikurinn í 2. deildinni fer svo fram her aðeins austar. Nánar tiltekið á Fáskrúðsfirði þar sem toppliðin tvö, Leiknir og Vestir, mætast. Þar þurfa Leiknismenn nauðsynlega á sigri að halda ætli þeir sér að halda sér í efstu tveim sætunum fyrir lokaumferðina.
Fyrir leik
Selfyssingar sitja sem fastast í 3. sætinu og mega ekki við því að misstíga sig í toppbaráttunni. Fyrir þá dugar í raun ekkert annað en sigur í síðustu tveim leikjunum ætli þeir sér upp.
Fyrir leik
Gestirnir frá Húsavík sitja í 8. sæti og eru öruggir með sæti í deildinni að ári. Geta hvorki fallið né komist í efstu tvö sætin.
Fyrir leik
Góðan dag gott fólk. Velkomin með okkur á Jáverk-völlinn á Selfossi. Hér fer annar af stærstu leikjum dagsins í 2. deildinni.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.