Fotbolti.net
Arnar Laufdal Arnarsson
Arnar Laufdal Arnarsson
Inkasso deildin - 1. deild karla
Extra völlurinn
Svaka rigning og mikill vindur
Fjölnir
Fjölnir
1 - 1
Leiknir R.
Leiknir R.
Ingibergur Kort Sigurðsson 77'1 - 01 - 181' Gyrðir Hrafn Guðbrandsson
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson

SKÝRSLAN: Fjölnir í Pepsi-Max!!

Hvað réði úrslitum?

Veðrið spilaði mjög mikið inn í þennan leik, mjög hvasst og mikil rigning varð til þess að þetta var ekki sá besti leikur á þessu tímabili fótboltalega séð.

Bestu leikmenn

1. Vuk Dimitrijevic

Hann átti góðan leik á vinstri kantinum. Var mest ógnandi hjá Leiknisliðinu í dag og skapaði nokkur góð færi.

2. Atli Gunnar Guðmundsson

Átti fínan leik milli stanganna hjá Fjölni í dag, varði vel á köflum, og átti sterkan seinni hálfleik með vindinn í andlitið og gerði engin mistök

Atvikið

Markið hjá Inga Kort þegar rúmt korter var eftir af leiknum, mikilvægt mark fyrir Fjölni sem gaf þeim mikið boost til að klára þessar 90 min!

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin þýða einfaldlega það að FJölnir spila í Pepsi-Max á næsta ári og með sigri Gróttu á Njarðvík áðan eru þeir 3 stigum fyrir ofan Leikni í 2.sæti og Leiknir eiga enn möguleika að fara með Fjölni upp.

Vondur dagur

Verð því miður að henda þessu á hann Albert Inga, kannski erfiðar aðstæður fyrir framherja til að sýna sitt besta en hann sást lítið sem ekkert í leiknum. Maður var kannski að búast við meira af framherja af hans kaliber, enda mikilevægasti leikur Fjölnis á tímabilinu. En því miður átti hann ekki góðan leik.

Dómarinn - 8,5

Jóhann átti fínan leik á flautinni í dag, var með góða stjórn á leiknum og gerði sjaldan mistök.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.