Fotbolti.net
Besta deildin
Hafliði Breiðfjörð
Hafliði Breiðfjörð
Besta-deild karla
Hásteinsvöllur
Rjómablíða, 17 stiga hiti, sól og lítill vindur að sunnan.
ÍBV
ÍBV
1 - 1
Keflavík
Keflavík
Felix Örn Friðriksson (misnotað víti) 15'Hermann Þór Ragnarsson 43'1 - 01 - 148' Sami Kamel64' Sindri Snær Magnússon
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson
Myndir: Fótbolti.net

SKÝRSLAN: Tvö mörk, rautt og víti í eyjum en eitt stig er bara svo lítið

Hvað réði úrslitum?

Það má í raun segja að gæðaleysi hafi verið áberandi í leiknum í dag og það skipti sköpum í að menn voru ekki klárir í að afgreiða þennan leik. Þetta var á löngum köflum ansi dapurt þó svo við höfum alveg fengið að sjá helling sem gerir fótboltaleik skemmtilegri. Tvö mörk, vítadómur, vítaklúður og beint rautt spjald svo eitthvað sé nefnt. En ef enginn er til í að skora sigurmarkið þá er hægt að sættast á jafnan hlut.

Bestu leikmenn

1. Hermann Þór Ragnarsson (ÍBV)

Hermann var ljósið í sóknarspili eyjamanna í dag. Markið var vel afgreitt af stuttu færi, hann átti líka stoðsendingu sem hefði átt að skila marki og var mjög vinnusamur. Svo spyr hann sig líka hvort hann hafi ekki átt að fiska rautt spjald á Gunnlaug Fannar Guðmundsson í fyrri hálfleik en Ívar Orri dómari var ekki á sama máli.

2. Mathias Rosenörn (Keflavík)

Keflavík gerði vel í að sækja þennan markvörð fyrir mótið. Hann er traustur og einn af bestu markvörðum deildarinnar. Hann gerði það sem hann átti að gera vel í leiknum og var alltaf tilbúinn að grípa inní og koma í veg fyrir hættur.

Atvikið

Uppáhaldsatvikið mitt í leiknum var jöfnunarmark Keflavíkur og ég stóð mig að því í fréttamannaboxinu að fagna því upphátt innan um eyjamennina sem þar voru. Ekki því ég hafi haldið með Keflavík heldur fannst mér afgreiðslan hjá Sami Kamel út í fjær hornið svo lystilega afgreidd. Kamel er frábær fótboltamaður, eflaust sá hæfileikaríkasti af öllum þeim sem tóku þátt í þessum leik. Með svona mann innanborðs gæti Keflavík alveg átt von um að reyna að bjarga sætinu í deildinni í sumar.

Hvað þýða úrslitin?

Vandamálið með jafnteflisleiki hjá liðum sem eru í neðri hlutanum er að þeir duga svo skammt. Það verður að slútta þeim með öllum þremur stigunum. Keflavík er í botnsætinu með 10 stig og ljóst að þeir þurfa fleiri en einn sigur til að komast úr fallsæti. ÍBV er hinsvegar í 7. sæti með 17 stig, og í dauðafæri að ógna FH, KR og HK sem eru fyrir ofan þá í baráttu um Evrópusætið sem 4. sætið gæti mögulega, kannski, gefið.

Vondur dagur

Sindri Snær Magnússon fékk beint rautt spjald eftir rétt rúmlega klukkutíma leik fyrir heimskulegt brot. Eftir að hafa brotið á Tómasi Bent lágu þeir báðir, boltinn var fyrir framan höfuð Tómasar og Sindra datt í einhvern veginn í hug að þruma í boltann, ekki bara einu sinni, heldur tvisvar, svo hann hamraðist í höfuð Tómasar. Það er ekki Sindra að þakka að Tómas kom ekki skaddaður út úr þessu einvígi. Sindri er einn af reynslumestu leikmönnum Keflavíkur og þarna brást hann liðsfélögum sínum. Það voru spilaðar 34 mínútur í viðbót í þessum leik (með uppbótartíma) og kannski heppni að ÍBV hafi ekki náð að nýta sér liðsmuninn til að skora sigurmark manni fleiri.

Dómarinn - 7

Ég hef áður fengið skammir í Vestmannaeyjum fyrir það eitt að gefa dómara góða einkunn en ætla samt að gefa Ívari Orra og hans teymi 7 fyrir frammistöðuna sem þykir góð einkunn. Saman leystu þeir rauðaspjalds dóminn frábærlega, vítaspyrnudómurinn var spot on að mínu mati en það er þó atvik sem eyjamenn kvarta undan þar sem þeir vilja meina að Gunnlaugur Fannar hafi sparkað Hermann Þór niður eftir að búið var að flauta í lok fyrri hálfleiks. Ég viðurkenni að ég sá ekki atvikið og get ekki haft skoðun á því. Atvik sem ég þó sá og spurði mig spurninga var þegar Alex Freyr Hilmarsson braut á Oleksii Kovtun út við hliðarlínu. Kovtun ögraði Alex þar og reyndi að fara í hanaat svo Alex henti sér niður með tilþrifum. Mér fannst að Keflvíkingurinn hefði ekki átt að komast upp með þessa stæla en á móti hefði dómarateymið líka geta ákveðið að spjalda báða, Kovtun fyrir stælana og Alex fyrir að henda sér niður. Þá hefði Alex fengið tvö gul á sama tíma og rautt. Svo kannski var þetta rétt leyst.

En svo ég fái að halda áfram smá ritgerð um dómgæslu. Fyrir mótið var gefið út að það ætti að leyfa leikjum að fljóta, flauta minna. Við vitum öll að það skilar mun skemmtilegri fótbolta. Dómararnir virðast í ansi mörgum tilfellum standa sig vel í að fara eftir þessum tilmælum en nú væri óskandi að stúkan gerði slíkt hið sama. Endalaust tuð yfir að ekki sé flautað á minnstu snertingar er leiðinlegt til lengdar. Þetta er ekki körfubolti!
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.