Fotbolti.net
Arnar Daði Arnarsson
Arnar Daði Arnarsson
Lengjudeild karla
AVIS völlurinn
Þróttur R.
Þróttur R.
2 - 2
Fjölnir
Fjölnir
0 - 120' Reynir Haraldsson0 - 228' Dagur Ingi AxelssonAron Snær Ingason 52'1 - 2Hinrik Harðarson 92'2 - 2
Dómari: Sveinn Arnarsson

SKÝRSLAN: Verðskuldað jöfnunarmark í uppbótartíma

Hvað réði úrslitum?

Þrautsegja, vilji og seigla í Þrótturum sem neituðu að gefast upp. En á sama tíma værukærð í liði Fjölnis sem voru meira og minna að bíða eftir að leiknum myndi ljúka.

Bestu leikmenn

1. Aron Snær Ingason

Var virkilega frískur í þessum leik þá sérstaklega á tímabili í seinni hálfleik þar sem Þróttarar áttu varla sókn nema Aron Snær væri potturinn og pannan í þeirri sókn.

2. Haukur Hinriksson

Eins og Aron, gríðarlega mikilvægur í sóknarleik Þróttar og skoraði þetta mikilvæga jöfnunarmark í lokin.

Atvikið

Eftir rúmlega hálftíma leik þurfti að gera skiptingu á dómaratríó-inu. Sigurður Schram mætti á flaggið
og leysti Rögnvald Höskuldsson af sem aðstoðardómari 2. Sigurður Schram kom sér vel inn í leikinn og stóð sig með prýði.

Hvað þýða úrslitin?

Gríðarlega mikilvægt stig fyrir Þróttara en á sama tíma tvö töpuð stig fyrir Fjölni í eltingarleiknum gegn Aftureldingu um toppsætið.

Vondur dagur

Kári Kristjánsson gerði sig sekan um mistök í fyrsta marki leiksins þegar hann sendi boltann nánast beint í fætur á Reyni Haraldssyni sem gerði vel í kjölfarið og skoraði. Varamenn Fjölnis sem komu inná í leiknum komu sér aldrei í takt við leikinn.

Dómarinn - 6,6

Allt í lagi ekkert svakalega gott. Erfiðleika stig leiksins ekki hátt en Sveinn náði þó að gera bæði lið hundfúl á köflum og nokkrir dómarar kolrangir. Hafði sem betur fer engin áhrifn á lokatölur í leiknum.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.