Fotbolti.net
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
EM U19 landsliða
Ta' Qali National Stadium
Alltof mikill hiti, um 32 gráður
Portúgal U19
Portúgal U19
0 - 1
Ítalía U19
Ítalía U19
0 - 119' Michael Kayode
Dómari: Sven Jablonski (Þýskaland)
Áhorfendur: 5648
Leik lokið!
ÍTALÍA ER EVRÓPUMEISTARI U19
Þetta er stórskemmtileg saga. Þeir voru næstum því fallnir út í fyrstu undankeppninni í september á síðasta ári. Þeir héldu áfram og komust inn á mótið. Þeir lendu í vandræðum í riðlinum en standa nú uppi sem Evrópumeistarar!

Til hamingju Ítalía! Og takk fyrir samfylgdina í kvöld.

Ég bið að heilsa heim til Íslands frá Möltu.
95. mín
Færi!
Síðasta tækifæri Portúgals. Sá ekki alveg hver átti skotið en það fór ekki langt fram hjá. Munaði ekki miklu.
94. mín
Ítölsku varamennirnir eru mættir út að hliðarlínu. Þeir eru tilbúnir að fagna.
94. mín
Markaskorarinn Kayode með frábæran varnarleik og fagnar eins og óður maður. Ef það er eitthvað sem Ítalir elska, þá er það góður varnarleikur.
93. mín
Ítalía er að mjólka klukkuna mjög vel, þeir eru að landa þessum titli.
Portúgal U19
91. mín
InnLuis Gomes
ÚtAntónio Ribeiro
90. mín
Fimm mínútum bætt við
Nægur tími fyrir jöfnunarmark!
Ítalía U19
88. mín
Gult spjald

Davide Mastrantonio

Fullt af gulum spjöldum í þessum leik! Nú fær markvörður Ítala gult spjald fyrir leiktöf.
86. mín
Portúgal keyrir upp í skyndisókn eftir hornspyrnu Ítala en Alessandro Dellavalle hleypur vel til baka og á geggjaða tæklingu. Hann fagnar síðan eins og Evrópumeistari.
85. mín
Portúgal er að reyna og reyna. Eins og staðan er núna þá mun þessi vondi fyrri hálfleikur kosta þá Evrópumeistaratitilinn.
Portúgal U19
82. mín
InnMiguel Falé
ÚtHugo Félix
Felix átti gríðarlega erfiðan dag á skrifstofunni.
82. mín
Lipani með skottilraun á hinum enda vallarins sem fer rétt yfir markið.
81. mín
Portúgal fær aukaspyrnu með fyrirgjafarmöguleika. Felix tekur enn einu sinni. Ágætis spyrna í þetta skiptið og smá darraðadans myndast á teignum en Mastrantonio - sem hefur átt stórfínan leik - kemur út og grípur.
Ítalía U19
80. mín
InnLuca Koleosho
ÚtGiacomo Faticanti
Ítalía U19
80. mín
InnNiccolò Pisilli
ÚtSamuele Vignato
79. mín
Dauðafæri!
Vignato sleppur svo einn í gegnum á hinum enda vallarins, en hann fær ekki mikinn tíma í skotið - varnarmenn Portúgals eru að ná honum. Hann lætur vaða og Ribeiro gerir vel í að loka. Hann var kominn vel út á móti.

Þetta hefði klárað leikinn fyrir Ítalíu.
78. mín
Hörmulegt
Felix stillir sér upp. Vonandi fyrir Portúgal er hann ekki að fara að skjóta...

Jújú, auðvitað tekur hann skotið. Það er beint á Mastrantonio sem grípur boltann auðveldlega. Liðsfélagar Felix eru örugglega orðnir vel þreyttir á honum.
Ítalía U19
78. mín
Gult spjald

Michael Kayode

Kayode brýtur á Borges og Portúgal fær aukaspyrnu rétt fyrir utan vítateiginn.
77. mín
Það eru 5648 áhorfendur á leiknum í kvöld.
Portúgal U19
76. mín
InnHerculano Nabian
ÚtGustavo Sá
76. mín
Esposito með skot sem fer ekki langt fram hjá markinu.
75. mín
Mjög flottur samleikur hjá Portúgal en Felix tapar svo boltanum þegar þeir eru komnir nálægt teignum.
74. mín
Bæði lið eru að undirbúa skiptingar.
Portúgal U19
73. mín
Gult spjald

Gustavo Sá

Alessandro Dellavalle fellur í teignum þegar Portúgal er í hættulegri sókn. Hann sækir aukaspyrnu og Portúgalar eru brjálaðir. Gustavo Sá mótmælir heiftarlega og fær gult spjald.
71. mín
Það er enn um 30 stiga hiti hér á Möltu og klukkan er orðin 22:32 að kvöldi til. Ég hef verið hérna í tvær vikur og ég hlakka mjög til að komast heim í íslenska sumarveðrið. Þetta er alltof mikill hiti.
70. mín
Felix aftur með skelfilega aukaspyrnu, rétt eins og í fyrri hálfleiknum. Yngri bróðir Joao er búinn að eiga ömurlegan dag.
69. mín
Hugo Felix sækir aukaspyrnu á mjög hættulegum stað. Og þá á ég við að hann sótti þessa aukaspyrnu, mjög lítið í þessu.
Portúgal U19
67. mín
Gult spjald

Joaquim Milheiro

Tuð.
66. mín
Gustavo Sá með skot en Mastrantonio ver. Það liggur portúgalskt mark í loftinu.
Ítalía U19
64. mín
InnLuca Lipani
ÚtCher N'Dour
Stæsta stjarna Ítalíu fer af velli.
63. mín
Felix reynir skot en Faticanti, fyrirliði Ítala, hendir sér fyrir það. Alvöru stríðsmaður úr skóla Mourinho.
61. mín
Geggjuð varsla!
Martim Fernandes með skalla að marki, hann nær góðum krafti í hann en Mastrantonio ver gríðarlega vel.

Það er meira líf í Portúgal þessa stundina, þeir eru að vakna.
58. mín
Besta tilraun Portúgals!
Hugo Felix, einn lágvaxnasti maður vallarins, með skallatilraun sem endar út við hliðarlínu. Þar tekur Borges við boltanum og leggur hann út á Gustavo Sá sem á svo stórhættulegt skot. Það fer af varnarmanni og rétt framhjá markinu! Það mátti heyra andköf á meðal stuðningsmanna.

Portúgal hefur ekki fengið betra færi til að skora í þessum leik.
56. mín
Esteves að súmmera frammistöðu Portúgals upp ótrúlega vel. Ætlar að senda út á kantinn og gerir það, en neglir boltanum beint í innkast.
53. mín
Vignato!
Fer illa með varnarmenn Portúgals og svo á skot sem Ribeiro nær að verja. Þarna minnti hann á fyrirmyndina sína, Ronaldinho! Varnarmenn Portúgala reyndu að brjóta á honum en þeim tókst ekki ætlunarverk sitt.
51. mín
Núna á Gustavo Sa skot af 25 metrunum en það fer fram hjá.
49. mín
Prioste reynir skot af löngu færi en það er auðvelt viðureignar fyrir Mastrantonio.
Portúgal U19
46. mín
InnMartim Fernandes
ÚtMartim Marques
Portúgal gerir tvöfalda breytingu í hálfleik.
Portúgal U19
46. mín
InnDiogo Prioste
ÚtSamuel Justo
Portúgal gerir tvöfalda breytingu í hálfleik.
46. mín
Seinni hálfleikur er hafinn
45. mín
Hálfleikur
Það er kominn hálfleikur í Ta' Qali. Forysta Ítalíu er mjög sanngjörn. Portúgal hefur ekki gert neitt sóknarlega í þessum leik, fyrir utan þessa ömurlegu aukaspyrnu í lok fyrri hálfleiks.
45. mín
Hugo Felix með hræðilega aukaspyrnu sem fer langt yfir markið. Hann hefur annars verið ósýnilegur í þessum leik.
Ítalía U19
45. mín
Gult spjald

Cher N'Dour

Carlos Borges kominn í hættulega skotstöðu og nær skoti, en það fer í varnarmann. Svo fær Portúgal aukaspyrnu á stórhættulegum stað. Ndour fær gult spjald fyrir brotið.

Það yrði eitthvað ef Portúgal myndi ná að jafna fyrir leikhlé.
45. mín
Tveimur mínútum bætt við fyrri hálfleik
44. mín
Portúgalski þjálfarinn reynir að öskra sína menn í gang.
42. mín
Vááááá
Hasa með geggjaða skottilraun en rétt yfir markið. Þetta er alvöru spilari!

40. mín
Portúgalarnir eru loksins að ná aðeins að koma sér inn í leikinn.
36. mín
Hættulegt!
Hasa með skot rétt fyrir utan teig, hann fær tíma til að athafna sig og nær ágætis skoti en Ribeiro er mættur í hornið og nær að verja vel.
Ítalía U19
33. mín
Gult spjald

Filippo Missori

Núna fá Ítalir sitt fyrsta spjald.
31. mín
Það verður ekkert úr þessari hornspyrnu og er Portúgal núna að sækja. Þeir komast hins vegar lítt áleiðis, þeir komast ekkert áfram.
30. mín
Mikill darraðdans skilar hornspyrnu fyrir Ítalíu.
28. mín
Loksins gerir Portúgal eitthvað en Davide Mastrantonio, markvörður Ítalíu, er á tánum og leysir mjög vel úr þeirri stöðu sem var komin upp. Boltinn var kominn inn á teiginn en hann kemur honum frá.
27. mín
Flestir væru líklega sammála um það að Portúgal hefur heilt yfir verið besta lið mótsins en það er ekki spurt að því. Þeir hafa mætt litlir í þennan leik og hafa ekki átt möguleika þessar fyrstu 27 mínútur.
Portúgal U19
26. mín
Gult spjald

Samuel Justo

Portúgal fær annað gult spjald.
24. mín
Hjátrúin
Það var blaðamannafundur fyrir leikinn í gær. Þar snerti portúgalski þjálfarinn bikarinn og skipaði fyrirliða sínum, Diogo Prioste, að gera það líka. Ítalarnir sleppti því. Ég veit til þess að hjátrúafulla fólkið í Portúgal var ekki sátt með þetta.
Portúgal U19
23. mín
Gult spjald

Gabriel Brás

Fyrir brot á miðjum vellinumn.
20. mín
Markaskorarinn
Kayode er 19 ára gamall leikmaður Fiorentina eftir að hafa áður fyrr verið í akademíu Juventus. Hann er fjölhæfur leikmaður sem getur bæði leyst það að spila í bakverði og á kanti. Í dag er hann að spila á kantinum og var þarna mættur inn á teig til að koma boltanum yfir línuna.

Ítalía U19
19. mín
Og þarna kemur markið!

Michael Kayode (stoðsending: Luis Hasa)

Þetta er mjög verðskuldað!

Hasa með sendingu fyrir og Michael Kayode skorar fyrsta mark leiksins með flottri afgreiðslu. Þetta er gríðarlega sanngjarnt, Ítalía verið mun sterkari aðilinn og Portúgalar, sem hafa spilað frábæran fótbolta á mótinu, virðast hræddir við stóru stundina.

18. mín
Ítalarnir eru að keyra trekk í trekk á portúgalska liðið. Þetta minnir mig á leik þeirra gegn Spáni í undanúrslitunum sem var þeirra langbesti leikur á mótinu.
15. mín
Portúgalska liðið ekki náð að komast í mikinn takt með boltann, þeir virka stressaðir. Á meðan eru Ítalir að spila eins og þeir hafa engu að tapa. Portúgal var sigurstranglegri aðilinn fyrir leikinn en þeir unnu leik liðanna 5-1 í riðlakeppninni.
14. mín
Luis Hasa með skot sem fer af varnarmanni og aftur fyrir. Ítalir fá hornspyrnu sem þeir taka stutt. Hasa fær boltann og sendir hann fyrir, flottur bolti á Esposito en hann skallar yfir markið.
13. mín
Ítalarnir verið líklegri það sem af er.
12. mín
Cher Ndour, nýjasti leikmaður Paris Saint-Germain, með skot fyrir utan teig sem fer yfir markið. Ágætis tilraun hjá þessum efnilega miðjumanni.
8. mín
Víkingaklapp!
Portúgölsku stuðningsmennnirnir hafa lært af ferð sinni í Laugardalinn fyrir nokkrum vikum síðan. Voru að taka flott víkingaklapp hérna fyrir stuttu. Tóku það einnig fyrir leik.
6. mín
Munið nafnið
Samuele Vignato að skapa smá usla. Það er nafn sem þið, lesendur góðir, ættuð að leggja á minnið. Hann er Ítali sem á ættir að rekja til Brasilíu, og hann spilar þannig. Hann er lítill og nettur, og er alls ekki hræddur við að taka menn á. Uppáhalds leikmaðurinn hans er Ronaldinho.

5. mín
Fyrstu mínúturnar mjög rólegar. Liðin að þreifa á hvor öðru.
1. mín
Leikur hafinn
Þjóðsöngvarnir að baki. Það var mikill kraftur í þeim báðum. Þá getum við hafið leik. Það er Portúgal sem hefur leik með boltann.
Fyrir leik
Portúgalska stuðningsfólkið í góðum gír
Það er búið að fjölmenna vel í stúkuna við hliðina á fjölmiðafólkinu. Þar situr stuðningsfólk Portúgals. Þau eru í ansi góðum gír og eru nú þegar búin að henda í sína útgáfu af víkingaklappinu.

Fyrir leik
Liðin eru komin út á völl að hita upp. Klukkan er 20:26 að staðartíma og hitinn er í 32 gráðum. Það er ekki auðvelt að spila í þessum aðstæðum en leikmenn úr báðum þessum liðum eru vanir því eftir dagana hérna á Möltu.

Fyrir leik
Frændur í hjarta varnarinnar
Það er fátt sem kemur á óvart í byrjunarliðunum, í raun ekkert. Það er athyglisvert að í hjarta varnarinnar hjá Ítalíu eru Dellavalle frændurnir frá Tórínó. Það munar bara 37 dögum á fæðingardögum þeirra, annar er fæddur 4. apríl og hinn 11. maí. Þeir eru nánir en það sem er athyglisvert er að Alessandro er á mála hjá Torino og Lorenzo hjá erkifjendum í Juventus. Í dag og á þessu móti eru þeir samherjar.

Fyrir leik
Byrjunarlið Portúgals
Fyrir leik
Byrjunarlið Ítalíu
Fyrir leik
Ítalir endurheimta Ndour
Cher Ndour, miðjumaður Ítala, var í banni gegn Spáni í undanúrslitum en hann snýr aftur í kvöld. Ndour er hávaxinn miðjumaður sem var að semja við Paris Saint-Germain í Frakklandi fyrir stuttu síðan. Leikstíll hans minnir mikið á Paul Pogba.

Ítalía saknaði hans ekki mikið í undanúrslitunum en innkoma hans mun styrkja liðið mikið í kvöld.

Fyrir leik
Með hvoru liðinu heldur Mourinho?
Fréttamaður Fótbolta.net sat fréttamannafund fyrir fyrirliðum og þjálfurum liðanna í gær og spurði Giacomo Faticanti, fyrirliða Ítalíu, út í Jose Mourinho. Faticanti er leikmaður Roma þar sem Mourinho þjálfar. Hann segir að Mourinho hvetji sig áfram fyrir hvern leik og hafi sent sér sínar bestu kveðjur fyrir mótið.

Mourinho er frá Portúgal en hann er með þrjá af leikmönnum sínum í ítalska hópnum. Með hvoru liðinu heldur hann í kvöld?

Fyrir leik
Portúgal á tvo bestu leikmenn mótsins hingað til
Tveir bestu leikmenn mótsins hingað til hafa verið Gabriel Brás, miðvörður Porto, og Hugo Felix, kantmaður Benfica. Sá síðarnefndi er bróðir Joao Felix, leikmanns Atletico Madrid.

Fyrir leik
Leiðin í úrslitaleikinn
Þessi tvö lið voru saman í riðli en þar var portúgalska liðið mun meira sannfærandi. Portúgal vann alla sína leiki, þar á meðal gegn Ítalíu, og endaði með markatöluna 9-2.

Ítalía endaði í öðru sæti riðilsins með fjögur stig. Ítalir mættu Póllandi í hreinum úrslitaleik í lokumaferð riðilsins og lenti þar undir, en tókst svo að jafna og komast áfram.

Portúgal vann 5-0 sigur á Noregi í unndanúrslitunum á meðan Ítalía vann óvæntan sigur gegn Spáni, 3-2. Ítalía spilaði frábærlega þar, sinn besta leik á mótinu.

Fyrir leik
Verið velkomin
Góðan daginn. Í kvöld fer fram úrslitaleikurinn á Evrópumóti U19 landsliða á Möltu. Við erum í Ta' Qali og ætlum að vera með beina textalýsingu frá leiknum.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.