Fotbolti.net
Þorsteinn Haukur Harðarson
Þorsteinn Haukur Harðarson
Lengjudeild karla
JÁVERK-völlurinn
Selfoss
Selfoss
2 - 4
Leiknir R.
Leiknir R.
0 - 125' Omar SoweGuðmundur Tyrfingsson 27'1 - 1Gonzalo Zamorano Leon 61'2 - 12 - 267' Daníel Finns Matthíasson (víti)2 - 378' Daníel Finns Matthíasson 2 - 481' Hjalti Sigurðsson
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
Áhorfendur: 206
Myndir: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

SKÝRSLAN: Leiknissigur í fjörugum leik

Hvað réði úrslitum?

Leiknisliðið var ekki betri aðilinn í leiknum en þeir voru betri fyrir framan markið. Varamennirnir hjá Leikni komu líka inn með mikið framlag.

Bestu leikmenn

1. Daníel Finns

Flottur í dag. Skoraði tvö mörk. Annað úr víti og hitt beint úr aukaspyrnu.

2. Omar Sowe

Nokkrir sem koma til greina hérna en Omar fær þetta fyrir stoðsendingu og mark.

Atvikið

Aukaspyrnumarkið hjá Danna Finns. Kom Leiknismönnum yfir þegar Selfyssingar höfðu átt mjög góðan kafla

Hvað þýða úrslitin?

Leiknismenn komast upp í sjötta sætið með sigrinum en Selfyssingar eru áfram í 10.sæti og í bullandi fallbaráttu.

Vondur dagur

Selfyssingar geta nagað sig í handabökin að hafa tapað þessum leik. Heilt yfir betri en fóru oft rosalega illa að ráði sínu.

Dómarinn - 7

Helgi Mikael var fínn í dag. Held að flestar stóru ákvarðanirnar hafi verið spot on.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.