Fotbolti.net
Kári Snorrason
Kári Snorrason
Lengjudeild karla
Norðurálsvöllurinn
Rok og 13 gráður
ÍA
ÍA
1 - 1
Vestri
Vestri
0 - 165' Benedikt V. WarénHlynur Sævar Jónsson 87'1 - 1
Dómari: Arnar Þór Stefánsson

SKÝRSLAN: Hiti og dramatík á Skaganum

Hvað réði úrslitum?

Vestri hafði mun meiri stjórn á leiknum en voru samt ekki vaðandi í færum og í þeim færum sem þeir fengu var nýtingin léleg.

Bestu leikmenn

1. Nacho Gil

Nacho var mikið í boltanum á miðjunni og var einn mest skapandi leikmaður Vestra í dag.

2. Hlynur Sævar Jónsson

Hlynur var mjög flottur varnarlega og skorar síðan þetta mikilvæga mark undir lokin.

Atvikið

Jöfnunarmark ÍA, Hlynur Sævar skorar og ÍA menn fagna vel og innilega en þjálfararnir á bekknum hjá Vestra voru bálreiðir út í dómaratríóið, þeim fannst Viktor Jónsson vera brotlegur í aðdraganda marksins.

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin þýða það að ÍA er enn í 3. sæti deildarinnar en Vestri sitja ennþá í 8. sæti deildarinnar.

Vondur dagur

Ibrahima Balde var heilt yfir flottur í dag en á 92. mínútu fékk hann dauðafæri en hann setti boltann framhjá marki ÍA, dýrt klúður.

Dómarinn - 6

Davíð Smári gagnrýndi dómara leiksins harðlega í viðtali eftir leik og var ekki sáttur með jöfnunarmark ÍA. Eftir að hafa horft á atvikið aftur finnst mér Gustav Kjeldsen detta ansi auðveldlega niður, en aftur á móti alveg hægt að dæma brot á Viktor Jónsson.
Heilt yfir fannst mér leikurinn vera aðeins of mikið stoppaður, það hefði mátt leyfa leiknum að flæða meira.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.