Leik lokið!
Yfirburðarsigur Stjörnumanna hér í kvöld í fjörugum leik
Skýrsla og viðtöl seinna í kvöld
90. mín
3 mínútum bætt við
90. mín
687 áhorfendur hér í dag
88. mín
Örvar Eggertsson næstum því búinn að skora
Góð sókn hjá Stjörnunni, Haukur Örn fær boltann á vinstri aleinn og sendir flottan bolta á Örvar sem nær ekki almennilega til hans.
Þarna hefði minnsta snerting orðið að marki.
88. mín
InnSigurður Gunnar Jónsson
ÚtÖrvar Eggertsson
88. mín
InnRobert Elli Vífilsson
ÚtMarko Vardic
88. mín
InnGuðfinnur Þór Leósson
ÚtRúnar Már S Sigurjónsson
84. mín
Marko Vardic með fínt færi
Rúnar Már vinnur aukaspyrnu á miðjum velli, tekur sjálfur aukaspyrnuna og sendir flottan bolta inn í teig.
Á endanum kemst Marko í boltann og á fast skot sem fer naumlega framhjá.
80. mín
Haukur með fínt færi
Góð sókn sem byrjar á hægri vængnum, boltinn berst inn í teig og á Hauk sem á skot sem fer í varnarmann og í horn.
76. mín
Ljótt brot á Guðmundi aftan frá
Marko Vardic
Þetta var nánast áras. Missir boltann og er greinilega pirraður og hendir sér í tæklingu aftan frá. Einhvern tímann hefði maður séð rautt fyrir svona73. mín
InnHaukur Örn Brink
ÚtBenedikt V. Warén
Þrefalt hjá Stjörnunni
73. mín
InnBaldur Logi Guðlaugsson
ÚtJóhann Árni Gunnarsson
Þrefalt hjá Stjörnunni
73. mín
InnAdolf Daði Birgisson
ÚtAndri Rúnar Bjarnason
Þrefalt hjá Stjörnunni
69. mín
Dauðafæri hjá Rúnari
Léleg sending hjá Jóhanni á Sindra sem nær ekki til boltans.
Rúnar Már sloppinn í gegn en hefur einhvern veginn enga trú á þessu og skýtur bara beint á Árna.
Það er uppgjöf hjá ÍA
65. mín
InnGabríel Snær Gunnarsson
ÚtGísli Laxdal Unnarsson
Tvöföld breyting
Mjög hissa samt á að Ómar sé tekinn út af.
Búinn að vera besti maður Skagamanna, mjög undarleg ákvörðun
65. mín
InnHaukur Andri Haraldsson
ÚtÓmar Björn Stefánsson
Tvöföld breyting
Mjög hissa samt á að Ómar sé tekinn út af.
Búinn að vera besti maður Skagamanna, mjög undarleg ákvörðun
61. mín
Trúðagangur í vörninni hjá ÍA
Erfið fæðing hjá hinum unga Arnóri sem á klaufalega móttöku og boltinn fer beint á Benedikt Warren sem á skot í stöngina.
Stjörnumenn miklu líklegri til að bæta við frekar en hitt
59. mín
Gult spjald
Jón Gísli Eyland Gíslason
Lætur Benedikt fara illa með sig og hefur varla annað val en að stöðva sóknina57. mín
Rosalegar upphafsmínútur
Skagamenn byrjuðu seinni hálfleik af krafti og fengu tvö dauðfæri en tókst ekki að skora.
Fá svo þetta sjálfsmark í andlitið og vont versnar.
Staðan allt í einu 3-0 fyrir gestunum
53. mín
Allt að hrynja hjá heimamönnum
Andri Rúnar Bjarnason (stoðsending: Guðmundur Baldvin Nökkvason)
Geggjuð sending hjá Guðmundi B sem sendir Andra Rúna einan í gegn. Rosalega flott og rólega gert hjá Andra sem er ekkert að æsa sig og fer einfaldlega framhjá Árna í markinu og rennir boltanum í autt markið.50. mín
Óheppnir Skagamenn
Baldvin Þór Berndsen (sjm)
Benedikt Warren á fína rispu á vinstri vængnum og gefur inn í teig en Árni fer í boltann og slær hann í sinn í eigin mann og boltinn fer inn. Þetta var ekki vel gert hjá Árna í markinu hjá ÍA, hér átti hann einfaldlega að grípa boltann í stað þess að slá hann út í teig með þeim afleiðingum að hann fer í Baldvin og í eigið net.48. mín
Erik með dauðfæri og Örvar ver á línu
Hornspyrna hjá Rúnari sem dettur fyrir fæturnar á Erik sem á skot á rammann en þarna var Örvar Logi vel staðsettur og hreinsar.
Þessi var á leiðinni inn
46. mín
Ómar í dauðafæri
Vá hvað gerðist þarna
Skapaði þetta færi sjálfur, brunar upp vinstri gefur svo á Marko sem sendir aftur á hann en skotið hans af 5 metra færi fer framhjá.
Þarna átti ÍA að jafna
45. mín
Seinni hálfleikur hafinn
45. mín
InnÖrvar Logi Örvarsson
ÚtGuðmundur Kristjánsson
Spurning hvort að Gummi sé tæpur
45. mín
Stjarnan yfir á Skaganum og sanngjörn forysta sú.
Tökum okkar 15
45. mín
2 mínútum bætt við
45. mín
Glórulaust spark aftan frá
Jóhann Árni Gunnarsson
Búinn að missa Marko fram fyrir sig og sparkar bara í hann. Verðskuldað gult.44. mín
Geggjað skot í slá hjá Viktori
Ómar aftur með flott tilþrif og sendir á Viktor sem er einn rétt fyrir utan teig og hamrar boltanum í slánna.
Árni Snær hefði aldrei varið þetta.
42. mín
Pirringsbrot og algjör óþarfi
Rúnar Már S Sigurjónsson
41. mín
Stjarnan komið yfir
Benedikt V. Warén (stoðsending: Samúel Kári Friðjónsson)
Flott sending hjá Samúel frá miðju, Andri Rúnar nær ekki til hans en boltann skoppar á Benedikt Warren og ólíkt því sem Gísli Laxdal gerði áðan þá klárar hann færið örugglega einn á móti Árna36. mín
Dauðafæri hjá Gísla Laxdal
Flottur skalli hjá Ómari sem sendir Gísla einan í gegn á móti Árna, en afgreiðslan alveg hræðileg og beint á Árna.
Þetta var besta færi leiksins og þarna átti Gísli einfaldlega að skora, það var engin Stjörnumaður nálægt honum
32. mín
InnArnór Valur Ágústsson
ÚtJohannes Björn Vall
Jóhannes Vall út af meiddur
30. mín
Andri Rúnar með flotta varnarvinnu
Þetta Stjörnulið berst eins og ljón og gott dæmi um það er þegar Andri Rúnar kemur brunandi úr sókninni til að verjast Jóhannesi Vall sem var með pláss á vinstri kantinum.
Andri Rúnar verst vel og heimamenn uppskera en eitt hornið sem ekkert verður úr.
24. mín
Hvernig var þetta ekki gult á Gumma Kri
Ómar fer framhjá Gumma á vinstri kantinum og Gummi notar hendurnar og hrindir honum í jörðina.
Dómarinn sá þetta vel og ekkert gult, kolröng ákvörðun að mínu mati.
Aukaspyrna vissulega dæmd en ekkert spjald, þarna hefði Ómar komist í hættulega stöðu
22. mín
Þrjár hornspyrnur í röð hjá ÍA
Flottar hornspyrnur ávallt hjá Johannesi Vall og nákvæmlega á þeim stað sem maður vill sjá þær.
En heimamenn ná ekki að notfæra sér þær.
20. mín
Þorri með flott skot
Nú er Þorri kominn í færi og á fast skot sem fer að vísu nokkuð beint á Árna en skotið er það fast að Árni þarf að slá hann yfir markið.
Það liggur mark í loftinu hjá gestunum, þeir eru einfaldlega miklu betri þessa stundina
18. mín
Dauðafæri hjá Gumma B
Lang innkast hjá Samúel og boltann fer inn í teig og dettur að mér sýnist fyrir fæturnar á Guðmundi Baldvini en honum tekst ekki að hitta markið og í raun hittir hann boltann illa.
Þarna sluppu heimamenn með skrekkinn
15. mín
Sóknir ÍA ekki eins líklegar til árangurs
Hinum megin finnst manni sóknir ÍA ekki eins líklegar til árangurs.
Stjarnan að byrja þennan leik vel
14. mín
Rosaleg gæði í sókn Stjörnunar
Það sést svo vel á vellinum gæðin sem býr í þessu Stjörnuliði þegar það sækir hratt á ÍA.
Svo margir góðir fótboltamenn þarna fremst.
11. mín
Þetta var rosalegt
Góð fyrirgjöf frá Alex og Árni í markinu hjá ÍA ætlar að fara upp og grípa boltann en það fór ekki betur en svo að hann lendir á Erik og missir boltann.
Strax í kjölfarið á Andri Rúnar dauðafæri en vel gert hjá Árna að ná að verja í stöðunni
8. mín
Góður sprettur hjá Ómari
Færa boltann á vinstri og fer framhjá Gumma Kri og er á leiðinni inn í teig en Gummi nær að komast í boltann og hreinsa í horn.
Fyrsta hornið í leiknum, en kemur ekkert upp úr því.
4. mín
Gísli Laxdal með skot
Leikurinn byrjar vel og bæði liðin ákveðin í að sækja og skora.
Þarna missti Guðmundur B boltann á hættulegum stað en skotið hjá Gísla rétt fyrir utan teig laust og beint á Árna.
2. mín
Fyrsta færið er gestanna
Warren með skallasendingu á Andra Rúnar sem tekur hann viðstöðulaust rétt fyrir utan teig, en boltinn hátt yfir.
0. mín
Loksins
Heimamenn byrja með boltann og stemningin er rafmögnuð á vellinum.
Skaginn hugsar um sína.
0. mín
Bekkurinn hjá Akranesi er rétt svo lögráða
Það vekur athygli að bekkurinn hjá Skagamönnum er 18 ára að meðaltali, það er svona með því yngsta sem þekkist.
Ef Rúnar væri á bekknum þá myndi meðalaldurinn hækka talsvert

0. mín
Stjarnan á bullandi siglingu
Stjörnumenn hafa verið á miklu flugi upp á síðkastið meðan allt hefur verið í rugli á skaganum og þeir mígleka og sé það ekki breytast strax, yfir 2 mörk Stjarnan á Epic er 2.20.
0. mín
Flott fótboltaveður
Það er geggjað veður hér á Skaganum í kvöld.
Um það bil 15 stiga hiti, hægur vindur og skýjað.
Og ég verð að segja það að grasið lýtur hrikalega vel út, alveg í toppstandi annað en liðið sem spilar á því.

0. mín
Göngin lokuð tímabundið til að bæta gráu ofan á svart
Göngin lokuð tímabundið einnig að mér skilst mér sem er ekki til að bæta ástandið.
Búið að opna aftur samt skilst mér.
En ég get staðfest það að Stjarnan er mætt á völlinn þannig að leikurinn verður spilaður.
0. mín
Leiknum hefur verið seinkað
Það var verið að tilkynna það á vellinum nú rétt í þessu að leiknum hefur verið seinkað um 15 mínútur af óviðráðanlegum ástæðum.
Leikurinn byrjar 19.30 en ekki 19.15.
Svo get ég upplýst ykkur af hverju leiknum hefur verið seinkað og það vegna umferðartafa úr Reykjavík. Vegaframkvæmdir í gangi og bara ein agrein opin frá Grafarvoginum og upp í Mosó.
Mér var að berast fregnir að það taki allt að 45 mínútur að aka þennan stutta kafla

0. mín
Byrjunarliðin
Deano gerir tvær breytingar á liðinu sem steinlá 4-1 gegn Aftureldingu í síðustu umferð. Oliver Stefánsson er í banni og Haukur Andri Haraldsson sest á bekkinn. Baldvin Þór Berndsen og Ísak Máni Guðjónsson koma inn í liðið. Hlynur Sævar Jónsson tekur einnig út leikbann.
Stjarnan lék síðast í Mjókurbikarnum þar sem liðið vann Keflavík í 8-liða úrslitum. Emil Atlason og Örvar Logi Örvarsson fá sér sæti á bekknum frá þeim leik. Guðmundur Kristjánsson og Andri Rúnar Bjarnason koma inn í liðið.
0. mín
Spákona dagsins
Fótbolti.net fékk Andreu Rut Bjarnadóttur úr toppliði Breiðabliks til þess að spá fyrir um 12. umferð Bestu deildar karla.
Hennar spá gerir ráð fyrir jafntefli á Skaganum í kvöld.
Eflaust yrðu það vonbrigði fyrir bæði liðin sem vilja sækja stigin þrjú
0. mín
Dómarar hér í kvöld
Dómarar hér í kvöld eru:
Gunnar Freyr Róbertsson Dómari
Kristján Már Ólafs Aðstoðardómari 1
Eysteinn Hrafnkelsson Aðstoðardómari 2
Kristinn Jakobsson Eftirlitsmaður
Helgi Mikael Jónasson Varadómari
Vonandi tekst Gunnari að halda tökum á leiknum og hann mun eflaust þurfa aðstoð gula spjaldsins til þess.

0. mín
Fyrri viðureignir
Þessi lið mættust í 2. umferð Bestu deildar og þá vann Stjarnan 2-1 með mörkum frá Andra Rúnari Bjarnasyni og Guðmundi Baldvin Nökkvasyni, en Steinar Þorsteinsson skoraði fyrir Skagamenn.
Sá leikur litaðist af mikilli hörku og fengu Skagamenn hvorki meira né minna en 5 gul spjöld í leiknum og eitt rautt þegar Haukur Andri Haraldsson var sendur í sturtu á 94. mínútu.
Stjörnumenn fengu sjálfir 4 gul spjöld þar með talið Jökull Elísabetarson þjálfari liðsins.
Vonandi nær Lárus Orri meira út úr Hauki Andra sem hefur valdið vonbrigðum það sem af er sumri

0. mín
Tímabundinn þjálfari Skagamanna í kvöld
Það er enginn annar en Deano sem mun stýra liðinu í kvöld, en Lárus Orri tekur formlega við eftir leik.
Lárus Orri situr þó ekki aðgerðarlaus á meðan og hefur hann fylgst með alla veganna einni æfingu og kynnt sig sem þjálfari liðsins eins og það þurfi. Það vita allir hver Lárus Orri er sem fylgjast reglulega með fótbolta.
0. mín
Meira um ÍA
Það fóru ansi margar sögur á kreik varðandi þjálfaramálin á Skaganum, hver verður næsti þjálfari liðsins?
Um tíma þótti Jóhannes Karl Guðjónsson langlíkegastur til að taka við og heyrðist orðrómur um að hann væri fluttur til Íslands.
En svo komu heldur betur óvæntar fréttir í gær og Lárus Orri Sigurðsson ráðinn í starfið.
Hann kemur beint úr sjónvarpinu en hafði fram að þeirri stundu verið í þættinum Stúkunni á Stöð 2 sport.

0. mín
Gengi Stjörnunnar
Það er allt annað upp á teningnum hjá Jökli og hans mönnum í Stjörnunni sem eru á smá siglingu þessa stundina og situr sem stendur í 5. sæti Bestu deildar.
Liðið hefur unnið tvo leiki og gert eitt jafntefli í síðustu þremur deildarleikjum.
Nú síðast vann liðið serkan heimasigur á móti Valsmönnum 3-2 og liðið er líka komið í undanúrslit Mjólkurbikarsins eftir að hafa unnið Keflavík 4-2 síðast miðvikudag.
Mynd af Örvari Loga fagna, en hann kom mikið við sögu í síðasta leik gegn Keflavík.

0. mín
Gengi Skagamanna
Það hefur gengið á ýmsu hjá Skagamönnum í sumar og því miður fyrir þá flest neikvætt.
Liðið hefur tapað fimm af síðustu sex leikjum sínum í deildinni og núna síðast 1-4 tap á móti nýliðunum í Aftureldingu.
Stjórn ÍA sagði hingað og ekki lengra og var þjálfari liðsins Jón Þór Hauksson látinn taka poka sinn.
0. mín
Góðan dag kæru áhorfendur
Verið hjartanlega velkomin í beina textalýsingu frá Elkem vellinum þegar heimamenn í ÍA taka á móti Stjörnunni í 12. umferð Bestu deildar karla klukkan 19.15 í kvöld










