Fotbolti.net
20.06.25 - 15:09
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Dean Martin stýrir ÍA gegn Stjörnunni

Dean Martin.

Dean Martin.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Dean Martin mun stýra ÍA í leiknum gegn Stjörnunni á sunnudag. Þetta staðfestir hann í símtali við Fótbolta.net í dag.

Jón Þór Hauksson var látinn fara á mánudag sem þjálfari ÍA eftir slæma byrjun á mótinu og ekki er búið að ráða hans eftirmann.

Deano, eins og Dean er iðulega kallaður, var aðstoðarmaður Jóns Þórs.

Jóhannes Karl Guðjónsson hefur verið sterklega orðaður við ÍA síðustu daga en hann er samningsbundinn AB í Danmörku.
Jói Kalli sagður taka við ÍA - Formaðurinn tjáir sig
TENGT EFNI

Jói Kalli sagður taka við ÍA - Formaðurinn tjáir sig

Lestu um leikinn: ÍA 0 - 3 Stjarnan
Deano verður á hliðarlínunni ásamt Dino Hodzic (markmannsþjálfari), Aroni Ými Péturssyni og goðsögninni Stefáni Þór Þórðarsyni sem hefur verið í þjálfarateymi 2. flokks félagsins og er líka afreksþjálfari.

Stefán lék allan sinn feril á Íslandi með ÍA, skoraði 42 mörk í 138 leikjum í öllum keppnum. Hann lék á sínum tíma sex landsleiki og skoraði eitt mark. Sem atvinnumaður lék hann á Englandi, í Svíþjóð, Þýskalandi, Noregi og Liechtenstein. Hann er faðir Olivers Stefánssonar sem er í stóru hlutverki í liði ÍA.

Deano er fyrrum leikmaður ÍA, Englendingur sem kom fyrst til ÍA 1998, aftur 2005 og var til 2007 og var svo aftur 2010-2013.

Hann kom til ÍA aftur 2023, kom eftir veru á Selfossi og kom inn sem aðstoðarþjálfari hjá Jóni Þór.

ÍA er í botnsæti Bestu deildarinnar, með níu stig eftir ellefu umferðir. Leikurinn á sunnudag verður þriðji leikur ÍA þar sem Deano verður í hlutverki aðalþjálfara á tímabilinu. Hann stýrði sigurleikjunum gegn Fram og Breiðabliki þegar Jón Þór var í leikbanni.
Stefán Þórðarson

Stefán Þórðarson

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.