Juventus berst við Napoli um Sancho - Slot hefur áhuga á Guehi - Man Utd horfir til Ítalíu
banner
   lau 21. júní 2025 14:58
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Viðtal
Lárus Orri stoltur: Hefði séð eftir því alla tíð
'Tengingin við ÍA er það sterkt að þetta er eitt af því sem er ekki hægt að segja nei við'
'Tengingin við ÍA er það sterkt að þetta er eitt af því sem er ekki hægt að segja nei við'
Mynd: ÍA
'Það er búið að vera mjög gaman að vera hjá SÝN í allri umfjölluninni, það hefur haldið manni í snertingu við íþróttina'
'Það er búið að vera mjög gaman að vera hjá SÝN í allri umfjölluninni, það hefur haldið manni í snertingu við íþróttina'
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
ÍA er í botnsæti deildarinnar. 'Það er okkar hlutverk að koma aftu trú í hópinn, koma sjálfstrausti í hópinn og fá leikmenn aftur á skrið'
ÍA er í botnsæti deildarinnar. 'Það er okkar hlutverk að koma aftu trú í hópinn, koma sjálfstrausti í hópinn og fá leikmenn aftur á skrið'
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Lék með ÍA undir lok ferilsins.
Lék með ÍA undir lok ferilsins.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Náði góðum árangri sem þjálfari KF.
Náði góðum árangri sem þjálfari KF.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Var síðast aðalþjálfari í meistaraflokki sumarið 2018 og stýrði þá Þór.
Var síðast aðalþjálfari í meistaraflokki sumarið 2018 og stýrði þá Þór.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍA hefur fengið á sig 28 mörk í ellefu mörkum, það þarf að laga varnarleikinn.
ÍA hefur fengið á sig 28 mörk í ellefu mörkum, það þarf að laga varnarleikinn.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
'Ég held að við séum með þannig leikmenn innanborðs hjá okkur að við komum alltaf til með að skora mörk'
'Ég held að við séum með þannig leikmenn innanborðs hjá okkur að við komum alltaf til með að skora mörk'
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Lárus Orri Sigurðsson var í dag tilkynntur sem nýr þjálfari ÍA, hann tekur við þjálfarastöðunni sem var laus eftir að Jón Þór Hauksson var látinn fara í upphafi vikunnar, á mánudag.

Lárus Orri er með sterka Skagatengingu, flutti ungur á Akranes og lék bæði með yngri flokkum félagsins og meistaraflokki á sínum leikmannaferli. Hann ræddi við Fótbolta.net í dag.

Fyrsta samtal á fimmtudagskvöld
„Á fimmtudagskvöld heyrði ÍA fyrst í mér, mjög stuttur aðdragandi og þetta var nánast klárt á sólarhring. Þetta var nánast klárt í gærkvöldi og svo keyrði ég upp á Skaga í morgun og skrifaði undir."

„Þetta er pínu flókið dæmi fyrir mig, ég bý á Akureyri, er að reka fyrirtæki þar. Það fyrsta sem kom upp í hugann minn var það að ef ég myndi ekki láta þetta ganga upp og ef ég myndi ekki skella mér ekki út í þetta þá ætti ég eftir að sjá eftir því alla tíð. Það var farið í það að gera það sem þyrfti að gera og óska eftir hjálp frá því fólki sem þurfti að tala við til þess að þetta gæti gengið og þetta gekk allt saman upp."

„Það kemur annað fólk og tekur af mér þau verkefni sem ég hef verið með í rekstrinum. Verkefnin í fyrirtækinu minnka töluvert, það er meira en 100% starf sem ég er í þar. Þetta er púsl sem mun ganga upp með hjálp fjölskyldunnar og góðs fólks,"
segir Lárus Orri sem hefur rekið Hrímland á Akureyri.

Mjög stoltur
Hvernig er fyrir Lárus Orra að fá kallið fá Skaganum, að hann eigi að vera maðurinn til að taka við liðinu?

„Þetta hefur gengið hratt fyrir sig, það var ekki fyrr en seint í gærkvöldi sem við komumst að samkomulagi og ákváðum þetta, og þá gerði maður sér almennilega grein fyrir þessu. Ég er mjög stoltur af því að Skaginn hafi leitað til mín, það er mitt uppeldisfélag, þarna á ég allar mínar minningar úr æsku og ég er mjög stoltur að þeir skyldu leita til mín. Eins og staðan er núna er þetta svolítið yfirþyrmandi verkefni sem er framundan, en mikil tilhlökkun að takast á við að vinna með þessum strákum og hjá þessu flotta félagi."

„Akranes er minn annar heimabær"
Hvernig hugsar þú um Akranes, hugsar þú um það sem „heima"?

„Ég á eiginlega tvo staði sem ég kalla heima. Ég er fæddur á Akureyri en flyt svo á Akranes þegar ég er sex ára gamall. Allur minn grunnskólaaldur er á Akranesi og er þar í yngri flokkunum. Akranes er minn annar heimabær."

Fyrsta markmið að halda liðinu uppi
Hvernig hugsar Lárus Orri verkefnið? Er bara hugsað út tímabilið, hvað vill hann fá út úr þessu?

„Í fyrsta lagi er hugsað út tímabilið, fyrsta skrefið er að koma öllu af stað aftur, vinna í þessu tímabili til að byrja með. Það er sameiginleg ákvörðun hjá okkur að hugsa þetta þannig fyrst til að byrja með, þó að alltaf sé einhver langtímahugsun varðandi markmið félagsins."

Það er nokkuð augljóst að markmiðið hlýtur að vera að halda liðinu uppi, en er það eina markmiðið?

„Það er fyrsta markmiðið, við erum komnir í þá stöðu að vera neðstir í deildinni. Það hefur ekki gengið eins vel og vonast var til. Að halda liðinu uppi er að sjálfsögðu fyrsta markmiðið."

Hans hlutverk að koma aftur trú í hópinn
Lárus Orri hefur verið í sérfræðingateymi Stúkunnar á SÝN Sport þar sem hver umferðir í Bestu deildinni er gerð upp. Hvað hefur vantað upp á hjá ÍA?

„Maður hefur séð það hjá liðinu, það er eins og það hefur oft á tíðum vantað trú á þetta hjá leikmönnum. Við sáum Skagaliðið, nánast sami leikmannahópur í fyrra, spila mun betur en það hefur gert í ár. Það eru auðvitað einhverjar leikmannabreytingar, en það er eins og trúin hafi að einhverju leyti tapast. Í fótbolti er þetta eins og snjóbolti, þegar boltinn byrjar að rúlla er oft erfitt að stoppa það. Það er okkar hlutverk að koma aftu trú í hópinn, koma sjálfstrausti í hópinn og fá leikmenn aftur á skrið."

Deano á hliðarlínunni á morgun
Dean Martin og Stefán Þórðarson munu stýra liði ÍA gegn Stjörnunni á morgun. Sá leikur hefst klukkan 19:15 og fer fram á ELKEM vellinum á Akranesi.

„Deano og Stebbi sjá algjörlega um þennan leik, ég kem inn í þetta svo seint. Þeir eru búnir að plana leikinn alla vikuna og voru með æfinguna áðan. Ég fór inn í klefa fyrir æfinguna, kynnti mig og tjáði leikmönnum að leikurinn og æfinginn yrði alfarið í höndum Deano og Stebba. Svo kem ég inn í þetta með þeim eftir leik á sunnudaginn."

„Deano er með 100% árangur á þessu tímabili, það er ekki slæmt."


Bara í mjög sérstökum tilfellum
Lárus Orri var síðast þjálfari Þórs sumarið 2018. Hvernig hefur hann séð þjálfarastarfið fyrir sér síðustu ár? Hefur þetta kitlað, eða kom bara fiðringurinn á fimmtudagskvöldið?

„Ég hef verið raunsær með þetta. Ég hef fengið töluvert af símtölum, alltaf sagt og talað um það við konuna mína, að það væru bara í mjög sérstökum tilfellum sem ég myndi færa mig hingað suður og taka að mér þjálfarastarf. Þetta er eitt af þeim tilfellum sem myndu verða þess valdandi að ég færi í þetta aftur. Ég hef ekki verið að bíða eftir þjálfarastarfi, en ég hef aldrei lokað á þetta."

Það skiptir sem sagt miklu máli að þetta sé ÍA?

„Tengingin við ÍA er það sterkt að þetta er eitt af því sem er ekki hægt að segja nei við. Mjög spennandi verkefni og gaman að sjá hvað þetta er stór og flottur klúbbur, mikill metnaður í gangi."

Náð góðum árangri á sínum þjálfaraferli
Lárus Orri er 52 ára, gæti átt mörg ár eftir sem þjálfari. Hann var landsliðsmaður og lék lengi á Englandi sem atvinnumaður. Hann var spurður meira út í hans sýn á þjálfarastarfið. Hefur það blundað í þér að koma þér aftur inn í þjálfaraheiminn og búa þér til alvöru nafn þar?

„Ég hef þjálfað meistaraflokk í tíu ár, þjálfaði Þór fyrst í fimm ár, tók þá félagið og byggði það upp aftur. Það var á mjög slæmum stað þegar ég tók við fyrst. Svo þjálfaði ég KF með mjög góðum árangri í þrjú ár, fórum upp í B-deild og stóðum okkur vel þó að við hefðum fallið á endanum. Svo þjálfaði ég aftur hjá Þór í tvö ár með góðum árangri, vorum nánast farnir upp í efstu deild. Þjálfaraferilinn hefur því gengið vel, hef þjálfað á stöðum þar sem hefur þurft að huga að ýmsum málum fyrir utan bara þjálfunina sjálfa á leikmönnunum."

„Aðstæður hafa bara þróast þannig að ég hætti að þjálfa á þessum tíma. Það voru bara aðrir hlutir í lífinu, ég var ekki hættur að þjálfa og var heldur ekki að leita að þjálfarastöðu. Ég leyfði þessu bara að þróast."

„Það er búið að vera mjög gaman að vera hjá SÝN í allri umfjölluninni, það hefur haldið manni í snertingu við íþróttina. Þetta hefur bara þróast í mjög skemmtilega átt."


Þarf að laga varnarleikinn
Varnarleikur ÍA hefur ekki verið góður, liðið hefur fengið á sig 28 mörk í 11 leikjum. Lárus Orri var hörku varnarmaður sem leikmaður, er aðdáandi góðs varnarleiks. Þú vilt væntanlega laga vörnina og byggja svo ofan á það framar á vellinum, eða hvað?

„Það er það fyrsta sem við þurfum að gera, fá færri mörk á okkur. Ég held að við séum með þannig leikmenn innanborðs hjá okkur að við komum alltaf til með að skora mörk. Við sem lið verðum að fækka mörkunum sem við fáum á okkur. Það er fyrsta mál á dagskrá."

Rætt um styrkingar
Í þessum samtölum við ÍA, hefur verið talað um að liðið verði styrkt í glugganum?

„Við ræddum leikmannamál alveg fram og til baka, þar á meðal var talað um styrkingu. Ég held að stefnan á ÍA sé mjög góð í þessum málum, þeir eru alltaf opnir fyrir styrkingu, það þarf bara að vera mjög góð styrking. Menn eru ekki komnir í eitthvað panikk og ætla að bæta við bara til að bæta við, heldur er horft í að ef eitthvað losnar sem er verulega áhugavert og gott fyrir ÍA, þá eru Skagamenn klárir."

Er ekki vitlaus
Að lokum, hellast yfir þig minningarnar núna þegar þú ert kominn aftur inn í félagið?

„Alveg klárlega, engin spurning. Maður á margar mjög góðar minningar, þetta var mjög skemmtileg stund í morgun. Nú hlakka ég til að takast á við þetta verkefni, ég er ekki vitlaus, ég hef verið í þessu ansi lengi, maður er búinn að fá margar góðar kveðjur núna, en nú fer þetta bara eftir því hvernig gengur inn á vellinum," segir Lárus Orri.

Hans fyrsti leikur sem þjálfari ÍA verður gegn Vestra á útivelli 29. júní.


Athugasemdir
banner
banner