Juventus berst við Napoli um Sancho - Slot hefur áhuga á Guehi - Man Utd horfir til Ítalíu
banner
   lau 21. júní 2025 10:18
Elvar Geir Magnússon
Lárus Orri nýr þjálfari ÍA (Staðfest)
Lárus Orri að störfum sem sérfræðingur.
Lárus Orri að störfum sem sérfræðingur.
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Lárus Orri Sigurðsson, fyrrum landsliðsmaður og sérfræðingur á Sýn Sport, mun taka við þjálfun ÍA út tímabilið. Félagið hefur staðfest þetta.

ÍA er í neðsta sæti Bestu deildarinnar og var Jón Þór Hauksson látinn taka pokann sinn eftir tap gegn Aftureldingu í síðustu umferð.

Lárus lauk leikmannaferli sínum hjá ÍA en hann hefur þjálfað KS/Leiftur og Þór. Hann starfaði síðast við þjálfun 2018.

Jóhannes Karl Guðjónsson var efstur á blaði hjá ÍA og félagið taldi sig geta fengið hann lausan en hann verður áfram hjá AB í Danmörku. Liðið kláraði nýliðið tímabil þar frábærlega.

Gunnar Heiðar Þorvaldsson, þjálfari Njarðvíkur, sagði við Fótbolta.net í gær að hann hefði ekkert heyrt í Skagamönnum en hann hafði verið sterklega orðaður við starfið.

„Lárus Orri Sigurðsson hefur verið ráðinn aðalþjálfari meistaraflokks karla hjá Knattspyrnufélagi ÍA. Lárus Orri mun taka formlega við þjálfun ÍA eftir leik liðsins gegn Stjörnunni sem fram fer á morgun og mun hann stýra liðinu út keppnistímabilið. Þjálfarateymi liðsins verður að öðru leyti óbreytt," segir í tilkynningu ÍA.

„Lárus Orri ólst upp á Akranesi og lék með yngri flokkum ÍA við góðan orðstír allt þar til hann flutti til Akureyrar á unglingsaldri. Þar lék hann með meistaraflokki Þórs í nokkur ár. Hann átti magnaðan atvinnumannaferil í Englandi sem spannaði 10 ár þar sem hann lék með Stoke og WBA, bæði í Championship deildinni og Premier League. Hann á að baki 42 A landsleiki og spilaði auk þess með öllum yngri landsliðum Íslands. Lárus Orri á farsælan 10 ára feril að baki í þjálfun meistaraflokka Þórs á Akureyri og KF."

„Við fögnum því mjög að fá Lárus Orra aftur til baka á æskuslóðirnar á Skaganum og hlökkum til að starfa með honum. Hann býr yfir mikilli reynslu og þekkingu sem leikmenn okkar og aðrir sem starfa í kringum félagið munu njóta góðs af.
Við bjóðum Lárus Orra innilega velkominn á Skagann!"

Besta-deild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Víkingur R. 11 7 2 2 22 - 13 +9 23
2.    Breiðablik 11 7 1 3 19 - 16 +3 22
3.    Vestri 11 6 1 4 13 - 7 +6 19
4.    Valur 11 5 3 3 24 - 16 +8 18
5.    Stjarnan 11 5 2 4 20 - 20 0 17
6.    Fram 11 5 0 6 18 - 17 +1 15
7.    Afturelding 11 4 2 5 12 - 14 -2 14
8.    ÍBV 11 4 2 5 12 - 17 -5 14
9.    KR 11 3 4 4 30 - 26 +4 13
10.    KA 11 3 3 5 10 - 18 -8 12
11.    FH 11 3 2 6 15 - 16 -1 11
12.    ÍA 11 3 0 8 13 - 28 -15 9
Athugasemdir
banner
banner