Fotbolti.net
Besta deildin
@karisnorraKári Snorrason
Kári Snorrason
Besta karla
Samsungvöllurinn
Stjarnan
Stjarnan
2 - 3
KR
KR
Örvar Eggertsson 44'1 - 0Benedikt V. Warén 45'2 - 02 - 160' Aron Sigurðarson2 - 268' Luke Morgan Conrad Rae2 - 387' Ástbjörn Þórðarson
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson

SKÝRSLAN: Nú kom Ástbjörn með höggið

Hvað réði úrslitum?

Því miður getur ekki notað klisjuna góðu: Leikur tveggja hálfleikja, um þennan leik. Þó svo að Stjarnan hafi leitt með tveimur mörkum í hálfleik þá voru KR-ingar hættulegri í fyrri hálfleik. Flestir á vellinum bjuggust eflaust við tvíelfdum KR-ingum í þeim síðari og raungerðist það. Flæðandi sóknarleikur KR-inga og gæðin fram á við gerðu gæfumuninn. Aftur á móti er einnig auðvelt að benda á varnarleik Stjörnumanna.

Bestu leikmenn

1. Luke Rae (KR)

Mark og góð stoðsending. Sífellt ógnandi á hægri kantinum, Örvar átti í miklum erfiðleikum með hann. Stöðvaði líka nokkrar skyndisóknir Stjörnunnar.

2. Amin Cosic (KR)

Eflaust hættulegasti maður vallarins og átti góða stoðsendingu í sigurmarkinu. Aron Sigurðsson var auðvitað frábær líka og skoraði frábært mark. Hann gerir svo sannarlega tilkall.

Atvikið

„Hemmi hnefi“ og „Hemmi krókur“ sungu stuðningsmenn KR eftir að Hermann var sakaður um að hafa kýlt Ástbjörn Þórðarson í þindina eftir leik Vals og KR um síðustu umferð. Í kvöld var taflinu hins vegar snúið við og var það Ástbjörn sem gaf Stjörnumönnum alvöru högg er hann fullkomnaði endurkomuna og skoraði sigurmark KR.

Hvað þýða úrslitin?

KR er með fullt hús stiga eftir fyrstu sex umferðirnar, KR-ingar ganga um í draumalandi Óskars Hrafns. Stjarnan tapaði sínum fjórða leik í röð, hitnar undir Jökli.

Vondur dagur

Ég vil setja þetta á bakverði Stjörnunnar. Öll mörk KR koma eftir fyrirgjafir. Dankerlui og Örvar Logi, byrjuðu í bakvörðum og áttu þeir erfitt með Amin og Luke Rae.

Dómarinn - 6

Fannst línan vera svolítið furðuleg og svo er spurning með rangstöðu í öðru marki Stjörnunnar. Set sexu á Sigurð og teymið góða!
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.