SKÝRSLAN: Keflavík með góðan sigur uppá Skaga
Hvað réði úrslitum?
Keflvíkingar voru miklu betri eftir að þeir komust í 1-0 og tóku þá yfir leikinn. ÍA komst í fullt af góðum stöðum en voru aldrei líklegir í að koma til baka og vond byrjun Skagamanna heldur áfram. Meðan Keflvíkingar halda áfram að sýna góða frammistöðu.
Bestu leikmenn
1. Alpha Conteh
Alpha Conteh fannst mér frábær í kvöld og var sífellt að ógna Skagamönnum með sínum hraða og vörn Skagamanna voru í miklu basli með hann
2. Stefan Ljubicic
Fannst Stefan Ljubicic geggjaður líka í kvöld Keflvíkingar leituðuð mikið af honum í uppspili og fleira og hann skoraði líka 3 mark Keflvíkinga mjög góður í dag.
Atvikið
Engin stór atvik nema þegar Gísli fór niður inní teig Keflvíkinga og vildi víti. Arnar hefði alveg getað dæmt víti í stöðunni 1-0 leikurinn sennilega þróast eitthvað öðruvísi.
Hvað þýða úrslitin?
Að Keflavík er komið í 7 stig gætu hæglega verið með fleiri stig. Meðan ÍA er ennþá bara með 5 stig og hafa ekki verið sannfærandi og halda því áfram.
Vondur dagur
Finnst miðjumenn Skagamanna geta allir tekið þetta Gummi Tóta, Gísli Eyjólfs og Haukur Andri voru ekki að finna sig í dag
Dómarinn - 7
Fannst Arnar dæma þennan leik mjög vel. missti aldrei nein tök á leiknum. Skagamenn vildu víti á 59. mín en dómarinn leyfði leiknum að halda áfram.



