SKÝRSLAN: Flugeldasýning í Víkinni og Óskar Bogga á eldi
Hvað réði úrslitum?
Það sem réði úrslitum í dag voru bara gæðin í Víkingum. Margir leikmenn sem eru hungraðir í að sýna hvað þeir geta og þeir bara völtuðu yfir brotið lið Þórs.
Bestu leikmenn
1. Óskar Borgþórsson
Óð á eldi í dag! Með 2 mörk og 2 stoðsendingar og hefði hæglega getað sett fleiri mörk! Ótrúlega hraður leikmaður og var fáránlega duglegur að finna pláss og komast í geggjaðar stöður í dag.
2. Elías Már Ómarsson
Átti líka mjög góðan dag, tjahh bara eins og allt Víkingsliðið í heild! Setti tvö mörk og hefur því enn eins marka forskot á Aron Sig í KR um gullskóinn.
Atvikið
Set þetta bara á þriðja markið hjá Víking, Óskar Bogga var þá búinn að gefa tvær stoðsendingar og setti svo sjálfur þriðja markið!
Þessi frammistaða hjá honum á fyrsta hálftíma leiksins bara gaf heldur betur tóninn fyrir leikinn!
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin þýða það einfaldlega að Víkingur er áfram í 2. sætinu en með 16 stig, 2 stigum á eftir KR á toppnum. Markatalan hjá Þór hins vegar snarversnar! og er í -12!
Vondur dagur
Þetta er svona 50/50 vondur dagur hjá bæði Yann Emmanuel Affi og Atla Sigurjónsson. Yann var bara ekki að finna sig í dag og var oft bara einhvern veginn úr stöðu. Atla langar væntanlega bara að gleyma þessum leik sem fyrst og mun örugglega fá martraðir yfir Óskari Bogga í nótt. Hann komst ansi oft inn fyrir í plássið á bakvið Atla.
Dómarinn - 6
Ég hef svo sem ekki yfir miklu að kvarta yfir dómarateyminu í dag. Þeir stóðu sína plikt bara með prýði, engar stórkostlegar ákvarðanir og leyfði leiknum að fljóta ágætlega.



