SKÝRSLAN: Njarðvík með sinn fyrsta sigur á tímabilinu
Hvað réði úrslitum?
Rauða spjaldið hjá Birki eyðilagði þennan leik fyrir fylki! Fylkir reyndu eins og þeir gátu í lokinn en Njarðvík vörðust vel.
Bestu leikmenn
1. Bragi Karl Bjarkason
Var eini sem var að koma sér í einhver færi og skoraði eitt mark.
2. Eiður Aron Sigurbjörnsson
Lagði upp fyrsta markið og varðist mjög vel! Ætla einnig að nefna Sigurjón sem skoraði og varðist einnig mjög vel.
Atvikið
Þegar Birkir Eyþórsson brýtur á sér í tvígang á miðjum vellinum með 2 mínútna millibili og kostar Fylki líklegast þennan leik.
Hvað þýða úrslitin?
Fylkir fara niður í 4.sætið á meðan Njarðvík færist upp í 6.sætið og vinna sinn fyrsta leik.
Vondur dagur
Nefni aftur Birki Eyþórsson en þetta seinna gula spjald hja honum var bara rugl og Fylkir áttu eiginlega aldrei séns eftir þetta.
Dómarinn - 7
Hann var bara mjög fínn, rólegur leikur en rauða spjaldið rétt fyrra spjaldið mögulega smá soft en seinna alltaf rétt að mínu mati.


