Leik lokið!
Grindvikingar bjarga stigi hér í kvöld. ÍR heilt yfir sterkara liðið en sofnaði á mikilvægum augnablikum í leiknum. Í það minnsta eru heimamenn væntanlega ósáttari aðilinn eftir þennan leik.
93. mín
Lárus Orri með fyrirgjöf en Vilhelm rís hæst og grípur.
92. mín
Þegar klukkan dettur í 92 fáum við að vita að uppbótartími er 3 mínútur.
89. mín
Grindavík er að jafna!
Lárus Orri Ólafsson
Langt innkast frá hægri inn á teiginn. Boltinn laus í teignum og Lárus Orri fyrstur á boltann og skilar boltanum í netið með góðu skoti af um 14 metra færi.88. mín
InnFriðrik Franz Guðmundsson
ÚtHeiðar Snær Ragnarsson
88. mín
Er eitthvað eftir í þessu? Bæði lið að reyna en það vantar eitthvað X uppá.
81. mín
InnLárus Orri Ólafsson
ÚtArnór Gauti Úlfarsson
81. mín
InnStefán Þór Pálsson
ÚtÓliver Andri Einarsson
80. mín
Barátta og meiri barátta síðustu mínútur. Grindvíkingar freista þess að jafna og stíga hærra á völlinn en engin færi til að tala um.
73. mín
Gult spjald
Halldór Atli Kristjánsson
Rosaleg tækling út við hliðarlínu. Vel appelsínugult þetta.69. mín
InnTareq Shihab
ÚtAndré Musa Solórzano Abed
68. mín
Sláarskot!
Boltinn fellur fyrir fætur Bergvins Fannars við teiginn og bíður hann ekki boðana og neglir boltanum að marki. Boltinn í slánna og yfir.
66. mín
Gult spjald
Ísak Atli Atlason
Grindavík með fyrirgjafarmöguleika.64. mín
Mark!
Rafael Alexandre Romao Victor
Vilhelm fljótur af stað til hægri og Rafael í gagnstætt horn.63. mín
Grindvíkingar eru að fá vítaspyrnu
Haraldur Björgvin með frábæra fyrstu snertingu, André Musa fer í hann og brýtur á honum og vítaspyrna dæmd.
Rétt hjá Twana frá mér séð.
60. mín
InnMikael Máni Þorfinnsson
ÚtEysteinn Rúnarsson
TG9 sáttur við þessa breytingu.
58. mín
Haraldur Björgvin í baráttuni í teig ÍR en kemur boltanum ekki á markið.
55. mín
ÍR að sækja upp hægri vænginn og ná fyrirgjöf. Boltinn beint í fang Hjörvars.
52. mín
Sofandaháttur.
Allt í skrúfunni hjá öftustu línu Grindavíkur. Arnór Gauti með ömurlega sendingu út úr vörninni á Eystein sem skilar honum til baka. Íringur kemst á milli og nær skoti en Arnór bjargar á línu
50. mín
Víðir Freyr með hörkuskalla eftir fyrirgjöf frá hægri en boltinn framhjá marki Grindavíkur.
49. mín
ÍR fær hornspyrnu
47. mín
Ingi Þór með skot fyrir Grindavík af löngu færi en talsvert framhjá markinu.
46. mín
Síðari hálfleikur hafinn
46. mín
InnRúnar Ingi Eysteinsson
ÚtValur Þór Hákonarson
45. mín
Sanngjörn staða heilt yfir. ÍR leikið af skynsemi svona að mestu og verið sterkari aðili leiksins.
40. mín
Eini staðurinn sem hann átti ekki að skjóta á.
Heiðar Snær í frábæru færi í teignum af vítapunkti með allt markið fyrir framan sig en setur boltann beint á Vilhelm..... Þarna átti Grindavík að minnka muninn.
38. mín
Dauðafæri
Rafael í hörkufæri eftir snarpa sókn. Boltinn fyrir markið frá vinstri á Rafael sem á skot frá markteigshorni hægra megin en Vilhelm ver í horn.
Vilhelm kýlir hornið í burtu.
34. mín
Grindvíkingar vinna hornspyrnu
Vilhelm kýlir frá.
31. mín
Gult spjald
Eysteinn Rúnarsson
31. mín
Heimamenn sterkari
Verið að finna góð svæði við teig Grindavíkur en færin sem slík látið á sér standa. Töluvert betra liðið þó.
24. mín
Beint úr aukaspyrnu!
Emil Nói Sigurhjartarson
Spyrnan hægra megin við D-bogann. Emil Nói lætur vaða í nærhornið og Hjörvar er hvergi nærri. Frábær spyrna.23. mín
Aukaspyrna á stórhættulegum stað fyrir ÍR.
Emil Nói stendur yfir boltanum.
22. mín
ÍR vinnur horn.
Rafael hreinsar frá .
17. mín
Gult spjald
Damir Muminovic
Fullorðins tækling15. mín
Langur bolti innfyrir vörn ÍR. Valur eltir boltann en Vilhelm mætir út og hreinsar frá.
12. mín
Aftur Víðir
Reynir skotið af talsverðu færi en beint í fang Hjörvars.
10. mín
Rafael Victor í skallafæri í teig ÍR en nær ekki að setja boltan á markið.
7. mín
Frábært mark
Víðir Freyr Ívarsson
Hirðir upp frákast eftir langskot ÍR í D-boganum. Í litlu jafnvægi en nær að setja góðan kraft í skotið sem syngur í bláhorninu.5. mín
Gult spjald
André Musa Solórzano Abed
Glæfraleg tækling á Rafael á miðjum vellinum. Twana ekki lengi að rífa upp spjaldið og það réttilega.1. mín
35 sekúndur og fyrsta tilraun á mark.
Víðir Freyr með skalla að marki eftir fyrirgjöf frá hægri en beint á Hjörvar í marki Grindavíkur.
1. mín
þetta er farið af stað í Egilshöll, það eru heimamenn í ÍR sem hefja hér leik og sækja í átt að Sambíóunum.
0. mín
Sindri Þór ekki með í kvöld
0. mín
Staðan í deildinni
ÍR er með þrjú stig eftir fyrstu tvo leikina, liðið skoraði sjö mörk gegn Aftureldingu í fyrstu umferð en tapaði svo 3-1 gegn Þrótti í síðustu umferð.
Grindavík er með tvö stig eftir jafntefli gegn Vestra og Njarðvík í fyrstu umferðunum.
0. mín
Þriðja liðið
Twana Khalid Ahmed er dómari leikins og honum tið aðstoðar eru þeir Óliver Thanh Tung Vú og Daníel Ingi Þórisson. Sigrður G Friðjónsson er eftirlitsmaður KSÍ.
Twana með flautuna

0. mín
Spáir þægilegum sigri
Markús Páll Ellertsson, leikmaður ÍA, spáir í leiki umferðarinnar í Lengjudeildinni.
ÍR 3 - 1 Grindavík
Verður þægilegur sigur fyrir ÍR-ingana.
0. mín
Velkomin í Egilshöll
ÍR tekur á móti Grindavík í 3. umferð Lengjudeildarinnar klukkan 20:00 og er spilað í Egilshöll þar sem völlurinn hjá ÍR, Þarfaþingsvöllurinn, er ekki tilbúinn.






