SKÝRSLAN: Nóg um að ræða í flautumarkssigri Fram
Hvað réði úrslitum?
Í þessum frábæra leik í kvöld þar sem hart var barist standa Framarar sem sigurvegara þökk sé glæsilegu marki á loka sekúndu leiksins frá Jakobi Byström.
Bestu leikmenn
1. Tryggvi Hrafn Haraldsson
Ekki oft sem tap liðið á mann leiksins en hann fær þetta frá mér í kvöld. Frábært mark og sturluð stoðsending. Einnig var hann allt í öllu í sóknarleik Vals og hefði á fullkomnum degi gert nóg til að skila þremur stigum
2. Kennie Chopart
Annar frábær leikur hjá fyrirliðanum en einnig gæti auðveldlega verið rökstutt að markverðirnir færu í annað sætið. Það vegaði þungt að þeim í dag og nokkrar ótrúlegar vörslur í kvöld.
Atvikið
Sigurmarkið, WOW þvílíkt skot og fagnaðarlætin sem brutust út voru klárlega atviki leiksins. Sumir vilja eflaust ræða vítadóma og ekki vítadóma en frábært skemmtun hér í kvöld.
Hvað þýða úrslitin?
Fram tekur sinn þriðja sigur í röð og færist í 3.sætið. Þremur stigum eftir Víking og fimm eftir KR sem er á toppnum, en þeir eiga einmitt KR í næsta leik. Valsmenn sitja í 5.sæti, þremur stigum eftir Blikum og tveimur stigum meira en Keflavík.
Vondur dagur
Valsmenn eru hundfúlir eftir annan tap leikinn í röð. Nálægt því að sækja mögulega sanngjarnt jafntefli en fá á sig þetta mark í lokinn og núll stig í nesti.
Dómarinn - 5
Að mínu mati nokkuð sannfærandi, eflaust verður skoðað og ritað um mögulegt hendi á Chopart, fyrsta markið hjá Fram en hann dæmdi líka mark af Fram sem var umtalsvert.



