Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25113 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR08.07.2025, 17:30

Norwich kaupir danskan markaskorara (Staðfest)

Norwich, sem endaði í 13. sæti ensku Championship deildarinnar, hefur fest kaup á danska landsliðsmanninum Mathias Kvistgaarden frá Bröndby. Hann er sagður kosta 6,9 milljónir punda en sú upphæð getur hækkað með árangurstengdum gjöldum og svo fær Bröndby prósentu af næstu sölu. Þetta gerir Kvistgaarden að þriðju stærstu sölu Bröndby á eftir Yuito Suzuki til Freiburg í sumar og sölunni á Daniel Agger til Liverpool árið 2025. Kvistgaarden er 23 ára framherji sem soraði 23 mörk í 38 leikjum með Bröndby, ásamt því að leggja upp sjö mörk.

FRÉTTIR08.07.2025, 16:16

Gudmundsson til Leeds (Staðfest)

Sænski landsliðsmaðurinn Gabriel Gudmundsson er genginn í raðir nýliða Leeds United í ensku úrvalsdeildinni. Gudmundsson er 26 ára vinstri bakvörður og hefur skrifað undir fjögurra ára samning við Leeds en hann er keyptur á 10 milljónir punda frá Lille í Frakklandi.

FRÉTTIR08.07.2025, 16:14

Gabriel Heinze aðstoðar Arteta (Staðfest)

Gabriel Heinze, fyrrum leikmaður Manchester United, er tekinn við starfi hjá Arsenal. Hann aðstoðar þar spænska stjórann Mikel Arteta. Hann kemur inn í teymið í stað Carlos Cuesta sem tók við þjálfarastarfinu hjá Parma á Ítalíu. Heinze og Arteta þekkjast vel en þeir spiluðu saman hjá PSG í Frakklandi á sínum tíma.

FRÉTTIR08.07.2025, 14:30

Sunderland nælir í bakvörð frá Atletico (Staðfest)

Sunderland hefur gengið frá kaupum á Reinildo Mandava frá Atletico Madrid. Mandava skrifar undir tveggja ára samning við Sunderland sem komst upp úr Championship deildinni í vor og verður því í ensku úrvalsdeildinni á komandi tímabili. Reinildo kom til Atletico árið 2022 og lék 99 leiki í öllum keppnum fyrir félagið, þar af 32 á síðasta tímabili þar sem hann spilaði reglulega í Meistaradeildinni og La Liga. Síðasti leikur hans fyrir Atletico var gegn PSG á HM félagsliða. Hann kemur til Sunderland á frjálsri sölu þar sem hann varð samningslaus í lok síðasta mánaðar.

FRÉTTIR08.07.2025, 14:00

Lánaður í þriðja sinn frá Tottenham (Staðfest)

Tottenham hefur staðfest að framherjinn Alejo Veliz sé farinn á láni til Rosario Central í Argentínu og verður þar út árið hið minnsta. Veliz er Argentínumaður sem var keyptur frá Rosario árið 2023. Talað var um að hann hefði kostað 13 milljónir punda þegar hann kom frá Argentínu. Hann spilaði átta leiki á sínu fyrsta hálfa tímabili hjá Tottenham og skoraði eitt mark, gegn Brighton. Hann kláraði það tímabil hjá Sevilla og lék svo á síðasta tímabili með Espanyol.

FRÉTTIR08.07.2025, 12:05

Kristian Hlyns til Twente (Staðfest) - „Mjög gott skref fyrir mig"

Kristian Nökkvi Hlynsson er genginn í raðir hollenska félagsins Twente en hann er keyptur frá Ajax þar sem hann var í rúm fimm ár. Landsliðsmaðurinn skrifar undir fjögurra ára samning við Twente. Hann var á láni hjá Sparta Rotterdam seinni hluta síðasta tímabils eftir að hafa verið í meiðslum og litlu hlutverki fyrri hluta tímabilsins hjá Ajax. Hann lék vel hjá Spörtu en kom svo til baka Ajax og var þá ekki inn í myndinni. Hann var settur til hliðar, bannað að æfa með aðalliðinu og er núna rúmri viku seinna kominn í nýtt félag. Hjá Ajax skoraði Kristian tíu mörk í 45 leikum. Kristian, sem er 21 árs, er mættur til Austurríkis þar sem Twente undirbýr sig fyrir komandi tímabil. <i>„Ég hlakka til að kynnast leikmönnum og starfsfólkinu á næstu dögum. Ég sé þessi félagaskipti sem mjög gott skref fyrir mig. Twente er stórt félag og hefur frábæra stuðningsmenn. Ég vil sýna mig hér. Fyrir mig var mikilvægt að ganga til liðs við nýtt félag snemma í sumar til að geta tekið þátt í undirbúningi fyrir tímabilið eins vel og mögulegt er,"</I> segir Kristian í tilkynningu félagsins. <i>„Kristian er kraftmikill sóknarmiðjumaður sem hefur sýnt að hann hefur hæfileika til að skora mörk. Hann er leikmaður með frábært hugarfar. Við erum fullviss um að hann geti orðið afgerandi leikmaður hjá FC Twente,"</I> segir Jan Strauer hjá Twente. Ajax endaði í 2. sæti hollensku deildarinnar í fyrra, Twente endaði í 6. sæti og Sparta endaði í 12. sæti. Twente fór í umspilið um sæti í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar á liðinni leiktíð en missti af Evrópusæti fyrir komandi leiktíð.

FRÉTTIR08.07.2025, 09:09

Kota Takai til Tottenham (Staðfest)

Tottenham hefur keypt japanska varnarmanninn Kota Takai frá Kawasaki Frontale í heimalandi hans, fyrir 5 milljónir punda. Takai er 20 ára og hefur skrifað undir fimm ára samning. Hann á fjóra landsleiki fyrir Japan en hann lék sinn fyrsta landsleik í undankeppni HM, gegn Kína, í september.

FRÉTTIR07.07.2025, 23:30

Edu ráðinn yfirmaður fótboltamála hjá Forest (Staðfest)

Edu Gaspar hefur verið ráðinn yfirmaður fótboltamála hjá Nottingham Forest en það er ný staða hjá félaginu. Edu var áður hjá Arsenal í því starfi. Hann er 47 ára Brasilíumaður en á leikmannaferlinum lék hann með Corinthians í heimalandinu, Arsenal og spænska liðinu Valencia.

FRÉTTIR07.07.2025, 22:00

Shaina Ashouri aftur í Víking (Staðfest)

Víkingur hefur fengið sterkan liðsstyrk í Bestu deild kvenna en Shaina Ashouri er komin aftur. Shaina lék með Víkingi á síðustu leiktíð þar sem hún lék 23 leiki í Bestu deildinni og skoraði átta mörk þegar liðið endaði í 3. sæti. Hún fór til Kanada í vetur og lék með Toronto.

FRÉTTIR07.07.2025, 12:41

Ásdís Karen til Braga (Staðfest) - Mætir Val í ágúst

Ásdís Karen Halldórsdóttir er gengin í raðir portúgalska félagsins Braga og skrifar undir samning sem gildir til ársins 2027. Hún er fengin frá spænska félaginu Madrid CFF en þar var hún seinni hluta síðasta tímabils. Hún hafði áður leikið með Lilleström í Noregi og Val og KR á Íslandi. Braga endaði í 3. sæti portúgölsku deildarinnar í vetur og mætir Val í forkeppni Meistaradeildarinnar í ágúst. <i>„Ég er mjög glöð að vera komin í þetta frábæra félag sem er með mikla sögu og frábærar aðstæður. Ég trúi því að við munum ná miklum árangri saman í framtíðinni. Það eru háar kröfur hérna, Braga berst alltaf um titla og í Evrópukeppnum. Ég mun gera mitt besta á hverjum degi til að ná miklum árangri hér." „Ég legg hart að mér á vellinum, bý yfir reynslu eftir að hafa spilað í nokkrum deildum í Evrópu, unnið titla og spilað í Meistaradeildinni. Ég er öflugur skotmaður og með góðan leikskilning." „Meistaradeildin er alltaf mjög aðlaðandi fyrir leikmenn. Við munum leggja hart að okkur til að standa okkur sem best í fyrstu leikjunum,"</I> segir Ásdís við undirskrift. Hún er fædd árið 1999 og á skráða tvo A-landsleiki. Hún spilaði tólf leiki með Madrid þar sem hún var liðsfélagi Hildar Antonsdóttur, og byrjaði þrjá þeirra.

FRÉTTIR07.07.2025, 11:17

Callum Wilson yfirgefur Newcastle (Staðfest)

Enski framherjinn Callum Wilson hefur yfirgefið Newcastle eftir fimm ár hjá félaginu. Þetta staðfestir félagið í dag. Samningur Wilson rann út í lok síðasta mánaðar og orðið er ljóst að hann mun ekki skrifa undir nýjan samning.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.