Correa og Cabral fara með á HM félagsliða (Staðfest)
Argentínumaðurinn Joaquin Correa rann út á samningi hjá Inter í sumar en er strax búinn að finna sér nýtt félag og mun taka þátt á HM félagsliða í sumar.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25117 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Argentínumaðurinn Joaquin Correa rann út á samningi hjá Inter í sumar en er strax búinn að finna sér nýtt félag og mun taka þátt á HM félagsliða í sumar.
Þýskalandsmeistarar FC Bayern eru búnir að staðfesta félagaskipti Tom Bischof til félagsins frá Hoffenheim. Hann er kynntur sem nýr leikmaður á sama tíma og miðvörðurinn Jonathan Tah sem kemur á frjálsri sölu frá Bayer Leverkusen.
Enska stórveldið Manchester City er búið að staðfesta kaup á fransk-alsírska bakverðinum Rayan Aït-Nouri.
Spænska félagið Barcelona og franski leikmaðurinn Clement Lenglet hafa komist að sameiginlegri ákvörðun um að rifta samningi leikmannsins og er hann formlega genginn í raðir Atlético Madríd á frjálsri sölu.
Ítalska félagið Inter hefur fundið arftaka Simone Inzaghi en það er rúmenski þjálfarinn Cristian Chivu sem mun leiða liðið áfram næstu tvö árin.
Spænska félagið Real Betis hefur virkjað kaupákvæði í samningi brasilíska varnarmannsins Natan, en hann kemur til félagsins frá Napoli fyrir 8 milljónir evra.
Reynsluboltinn og stuðpinninn Scott Carson er á förum frá Manchester City þegar samningur hans rennur út um mánaðamótin en félagið greinir frá þessu.
Chelsea hefur fest kaup á franska varnarmanninum Mamadou Sarr frá franska félaginu Strasbourg.
Brynjar Kristmundsson hefur tekið ákvörðun um að hætta sem þjálfari Víkings Ólafsvíkur eftir þetta tímabil. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Ólsurum í dag.
Franski þjálfarinn Patrick Vieira, sem hefur verið orðaður við Atalanta, Fiorentina og Juventus, verður áfram þjálfari Genoa, en hann framlengdi í dag samning sinn við félagið til 2027.
Ítalski þjálfarinn Luciano Spalletti tilkynnti sjálfur á blaðamannafundi í dag að ítalska fótboltasambandið hafi ákveðið að láta hann taka poka sinn sem þjálfari karlalandsliðsins áður en hann rauk af fundinum.
Robert Vilahamn, þjálfari kvennaliðs Tottenham, var rekinn í dag eftir slakan árangur á tímabilinu.
Liverpool gekk í dag frá kaupum á ungverska markverðinum Armin Pecsi, en hann kemur til félagsins frá Puskas Akademia.
Ítalska félagið Inter gekk í dag frá kaupum á brasilíska vængmanninum Luis Henrique en hann kemur til félagsins frá Marseille.
Logi Tómasson skrifaði í síðasta mánuði undir fjögurra ára samning við tyrkneska félagið Samsunspor og rétt í þessu voru félagaskiptin opinberuð af félögunum. Logi er keyptur til Samsunspor eftir tæp tvö ár hjá norska félaginu Strömsgodset. Hann lék vel hjá Godset og vann sér með því inn sæti í íslenska landsliðinu, en hann er einmitt núna með íslenska landsliðinu í Skotlandi. Hann var eftirsóttur í vetur, var t.d. sterklega orðaður við Brann í Noregi. Logi er 24 ára vinstri bakvörður sem samkvæmt <i>Transfermarkt</i> skoraði átta mörk og lagði upp fimm í 53 leikjum með Strömsgodset. <i>Transfermarkt</I> segir að Samsunspor greiði 700 þúsund evrur fyrir Loga en sú upphæð getur hækkað út frá árangurstengdum greiðslum.
Davide Ancelotti hefur sameinast föður sínum, Carlo Ancelotti, á ný en þeir munu þjálfa saman brasilíska landsliðið. Carlo stýrði Brasilíu í fyrsta sinn á fimmtudaginn þegar liðið gerði markalaust jafntefli gegn Ekvador í undankeppni HM.
Brasilíski miðjumaðurinn Jorginho hefur yfirgefið Arsenal og er genginn til liðs við brasilíska félagið Flamengo.
Ivan Juric hefur verið ráðinn þjálfari Atalanta og skrifar undir tveggja ára samning.
Newcastle greindi í dag frá breytingum á leikmannahópi sínum eftir tímabilið 2024/25. Jamal Lewis er eini leikmaður aðalliðsins sem yfirgefur félagið á frjálsri sölu. Lloyd Kelly hefur verið keyptur til Juventus en hann fór á láni til ítalska félagsins í janúar og var kaupákvæði í samningnum. Kelly er varnarmaður sem kom á frjálsri sölu til Newcastle frá Bournemouth síðasta sumar. Juve greiðir 14,5 milljónir evra fyrir Kelly en sú upphæð getur hækkað út frá árangurstengdum gjöldum.
Víkingur tilkynnti í dag að félagið væri búið að ráða Brynjar Björn Gunnarsson í þjálfarateymi meistaraflokks karla. Sagt er að það sé í aðdraganda Sambandsdeildar karla en dregið verður í 1. umferð forkeppninnar eftir rúma viku og sú umferð spiluð í júlí. Brynjar Björn er tilkynntur sem meðþjálfari Sölva Geirs í Evrópukeppninni. Brynjar Björn var síðast aðstoðarþjálfari Fylkis seinni hluta síðasta tímabils eftir að hafa verið látinn fara frá Grindavík snemma á tímabilinu. Hann fundaði samkvæmt heimildum Fótbolta.net með Leikni á dögunum en Leiknir ákvað að ráða Ágúst Gylfason í þjálfarastarið.