Davide Ancelotti hefur sameinast föður sínum, Carlo Ancelotti, á ný en þeir munu þjálfa saman brasilíska landsliðið.
Carlo stýrði Brasilíu í fyrsta sinn á fimmtudaginn þegar liðið gerði markalaust jafntefli gegn Ekvador í undankeppni HM.
Carlo stýrði Brasilíu í fyrsta sinn á fimmtudaginn þegar liðið gerði markalaust jafntefli gegn Ekvador í undankeppni HM.
Davide var orðaður við önnur störf, m.a. hjá Rangers og Deportivo La Coruna en Russell Martin var ráðinn til Rangers.
Davide og Carlo hafa unnið saman frá 2011. Davide var þrekþjálfari hjá PSG og Real Madrid en var ráðinn aðstoðarþjálfari hjá Bayern árið 2016. Hann var síðan í því starfi síðar hjá Napoli, Everton og Real Madrid á ný.
Athugasemdir