Liverpool gerir lokatilboð í Wirtz - Real Madrid reynir að stela Zubimendi - Grealish til Everton?
   mán 09. júní 2025 16:30
Brynjar Ingi Erluson
Barcelona og Lenglet gera starfslokasamning - Semur við Atlético til 2028 (Staðfest)
Mynd: EPA
Spænska félagið Barcelona og franski leikmaðurinn Clement Lenglet hafa komist að sameiginlegri ákvörðun um að rifta samningi leikmannsins og er hann formlega genginn í raðir Atlético Madríd á frjálsri sölu.

Börsungar fengu Lenglet frá Sevilla árið 2018 fyrir 35 milljónir evra og spilaði hann vel með liðinu fyrstu árin áður en það fór að falla undan fæti hjá honum.

Hann hefur eytt síðustu þremur tímabilum á láni hjá Aston Villa, Tottenham og nú síðast Atlético Madríd, en þessi 29 ára gamli Frakki náði samkomulagi við Barcelona um að rifta samningnum í dag.

Báðir aðilar töldu þetta besta kostinn í stöðunni en Lenglet var að þéna um 200 þúsund evrur í vikulaun hjá Börsungum.

Atlético Madríd tilkynnti á sama tíma að Lenglet væri búinn að skrifa undir þriggja ára samning við félagið eftir flotta frammistöðu á tímabilinu.

Lenglet spilaði 160 leiki á tíma sínum hjá Barcelona og skoraði 7 mörk. Hann á þá 16 A-landsleiki að baki með Frökkum og var meðal annars í hópnum sem tók bronsverðlaun í Þjóðadeildinni í gær.


Athugasemdir
banner
banner