Franski þjálfarinn Patrick Vieira, sem hefur verið orðaður við Atalanta, Fiorentina og Juventus, verður áfram þjálfari Genoa, en hann framlengdi í dag samning sinn við félagið til 2027.
Vieira tók við Genoa í nóvember á síðasta ári er liðið var einu stigi fyrir ofan fallsæti.
Frakkinn náði að fjarlægjast fallsvæðið og halda liðinu áfram í Seríu A en liðið hafnaði í 13. sæti með 43 stig.
Síðustu vikur hafa verið gerðar margar breytingar hjá félögunum og var Vieira meðal annars orðaður við þjálfarastarfið hjá Atalanta, Fiorentina og Juventus, en hann hefur nú þakkað Genoa traustið með því að framlengja samning sinn til 2027.
„Ég er ótrúlega stoltur yfir því sem við höfum byggt og afrekað hér. Eftir síðasta leik tímabilsins gegn Bologna hélt ég reglulegu sambandi við félagið og stjórnarmenn þess til að fara yfir tímabilið og undirbúa næsta,“ sagði Vieira.
Áður þjálfaði Vieira Strasbourg, Crystal Palace, Nice og New York City FC.
Landsliðsmaðurinn Albert Guðmundsson er samningsbundinn Genoa og Mikael Egill Ellertsson samdi við félagið í janúar fyrir komandi tímabil.
???? Il Genoa CFC comunica di aver esteso il contratto dell’allenatore Patrick Vieira fino al 30 giugno 2027.
— Genoa CFC (@GenoaCFC) June 8, 2025
La nota del Club ???? https://t.co/2B3dxKMg1M ???????? pic.twitter.com/S9R5ZYTvjz
Athugasemdir