Mbeumo gæti farið með Frank til Tottenham - Newcastle reynir við Joao Pedro - Hvert fer Leao?
   sun 08. júní 2025 14:48
Brynjar Ingi Erluson
Spalletti rekinn sem þjálfari ítalska landsliðsins (Staðfest) - Tilkynnti brottreksturinn og rauk síðan af fundinum
Mynd: EPA
Ítalski þjálfarinn Luciano Spalletti tilkynnti sjálfur á blaðamannafundi í dag að ítalska fótboltasambandið hafi ákveðið að láta hann taka poka sinn sem þjálfari karlalandsliðsins áður en hann rauk af fundinum.

Sæti Spalletti var heitt fyrir leik liðsins gegn Moldóvu í undankeppninni og var umræðu um að hann yrði látinn fara eftir þetta verkefni.

Spalletti ákvað að vera fyrri til og tilkynnti hann á fundinum í dag að leikurinn gegn Moldóvu yrði hans síðasti með landsliðinu. Búið var að tjá honum að hann yrði látinn fara eftir verkefnið.

Fjölmiðlar gengu á Spalletti í leit að svörum sem fékk á endanum nóg og rauk af fundinum.

„Við töluðum saman í gær og þeir sögðu að mér yrði sagt upp störfum sem landsliðsþjálfari. Ég var mjög leiður yfir þessu því ég hafði engan áhuga á að gefast upp.“

„Ég hefði viljað vera áfram og sinna starfi mínu, sérstaklega þegar hlutirnir eru ekki að ganga vel, en hins vegar ef þetta er einhver skonar sakarafburður þá verð ég að taka því. Ég hef alltaf horft á þetta hlutverk sem þjónustu við heimalandið og vildi ég hjálpa til við að móta framtíð landsliðsins.“

„Ég tel það rétt að leita eftir því besta og mun ég því rifta samningnum. Ég mæti á morgun gegn Moldóvu. Ég hef alltaf haldið því fram að leikmennirnir mínir séu sterkir, en úrslitin eru undir minni stjórn og verð ég að taka ábyrgð,“
sagði Spalletti.

Spalletti fékk á endanum nóg af spurningum blaðamanna og rauk af fundinum.

Ítalía tapaði fyrir Noregi, 3-0, í fyrsta ítalska liðsins í undankeppni HM á dögunum.

Á þessum tveimur árum hefur hann unnið ellefu leiki, tapað sex og gert sex jafntefli.
Athugasemdir
banner