FRÉTTIR22.04.2024, 11:43
Grindavík hefur fengið portúgalskan vinstri bakvörð í sínar raðir fyrir komandi átök í Lengjudeildinni.
Nuno Jorge Nobre Barbosa Malheiro, eða einfaldlega Nuno Malheiro, er kominn með leikheimild með Grindavík og getur spilað þegar Grindavík mætir ÍBV í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins á fimmtudaginn.
FRÉTTIR22.04.2024, 09:36
Helena Ósk Hálfdánardóttir er mætt í FH á láni frá Val og er komin með leikheimild fyrir leik FH gegn Tindastóli. Sá leikur hefst klukkan 17:00 á Sauðárkróksvelli í dag.
Helena var ónotaður varamaður hjá Val í gær þegar meistararnir lögðu Þór/KA að velli í opnunarleik Bestu deildarinnar.
FRÉTTIR20.04.2024, 13:53
<p>Martim Sequeira er genginn til liðs við Hött/Huginn og mun leika með liðinu í 2. deildinni í sumar.</p>
FRÉTTIR20.04.2024, 07:30
Það er óhætt að segja að neðri deildir enska fótboltapýramídans séu gríðarlega ósáttar eftir tilkynningu frá enska fótboltasambandinu sem segir að endurteknir leikir í FA bikarnum heyri sögunni til.
FRÉTTIR19.04.2024, 21:40
Rúnar Már Sigurjónsson er genginn til liðs við ÍA en þetta var staðfest á herrakvöldi félagsins sem nú stendur yfir. Rúnar mætti upp á svið.
Þessi gríðarlega reynslumikli miðjumaður, fyrrum landsliðsmaður og atvinnumaður til fjölda ára, hefur skrifað undir samning við Skagamenn til loka tímabilsins 2026 en hann er 33 ára.
Rúnar Már hefur leikið 32 A-landsleiki og skoraði í þeim 2 mörk. Hann spilaði sem atvinnumaður í Svíþjóð, Sviss, Rúmeníu og Kasakstan. Spilaði hann 271 leik og skoraði í þeim 60 mörk og gaf 42 stoðsendingar. Á þessum tíma vann Rúnar Már deildina í Rúmeníu tvisvar sinnum, deildina í Kasakstan einu sinni og varð meistari meistaranna bæði í Rúmeníu og Kasakstan. Hann spilaði í riðlakeppni Evrópudeildarinnar og Sambandsdeildarinnar og eru Evrópuleikirnir 29, 9 mörk og 5 stoðsendingar.
<i>„Rúnar Már mun koma til með að styrkja lið ÍA verulega og er mikil tilhlökkun að fá að fylgjast með honum næstu ár,"</i> segir í tilkynningu ÍA.
ÍA er með þrjú stig eftir tvær umferðir í Bestu deildinni en liðið mætir Fylki í Akraneshöllinni á sunnudag.
FRÉTTIR19.04.2024, 19:30
Fram hefur tryggt sér þjónustu Evu Stefánsdóttur sem kemur á láni frá Val og mun leika með liðinu út tímabilið.
FRÉTTIR19.04.2024, 18:31
Manchester United hefur staðfest ráðningu á Jason Wilcox sem nýjum tæknistjóra félagsins, þar sem hann mun starfa samhliða nýlega ráðnum framkvæmdastjóra Omar Berrada og væntanlegum yfirmanni fótboltamála Dan Ashworth, sem er samningsbundinn Newcastle United sem stendur.
FRÉTTIR19.04.2024, 12:43
Grótta tilkynnti rétt í þessu að Pétur Theódór Árnason væri genginn til liðs við félagið frá Breiðabliki.
<b>Úr tilkynningu Gróttu:</b>
Eins og kunnugt er var Pétur keyptur til Breiðabliks frá Gróttu eftir tímabilið 2021 en varð fyrir því óláni að slíta krossband þá um haustið. Pétur lék því aðeins einn leik þegar Breiðablik varð Íslandsmeistari árið 2022 og spilaði svo með Gróttu á láni síðasta sumar. Liðþófameiðsli urðu til þess að Pétur spilaði ekkert seinni hluta tímabilsins í fyrra en fyrstu æfingarnar með Gróttu hafa gengið vel og það verður spenanndi að sjá hvort að framherjinn knái nái að láta ljós sitt skína í sumar.
Pétur var samningsbundinn Breiðabliki út komandi tímabil en ákvað fyrr í vetur að rifta samningi sínum við félagið.
FRÉTTIR19.04.2024, 12:30
Augnablik tilkynnti í dag að Rúnar Ingi Eysteinsson væri búinn að kveðja félagið og væri genginn í raðir Keflavíkur.
<i>„Það er komið að tímamótum hjá einum okkar helsta markaskorara, Rúnari Inga, en hann hefur skrifað undir samning við Suðurnesjarisann Keflavík,"</I> segir í byrjun tilkynningarinnar sem má lesa í heild sinni hér neðst.
FRÉTTIR19.04.2024, 11:38
Valur tilkynnti í dag að félagið hefði náð samkomulagi við bandaríska bakvörðinn Camryn Paige Hartmann um að spila með liðinu tímabilið 2024.
Hartmann er 24 ára vinstri bakvörður og kemur hún frá Cleveland. Í tilkynningu Vals segir að hún eigi nokkuð farsælan feril úr háskólaboltanum að baki.
FRÉTTIR19.04.2024, 09:30
Julian Nagelsmann hefur skrifað undir framlengingu á samningi sínum sem landsliðsþjálfari Þýskalands.
Nagelsmann var sagður efstur á blaði hjá Bayern München sem skiptir um stjóra í sumar og þá hefur hann verið orðaður við ensku úrvalsdeildina, þar á meðal Liverpool.
En Nagelsmann, sem er 36 ára og tók við af Hansi Flick í september, er nú búinn að skrifa undir samning sem gildir út HM 2026 en þá fer keppnin fram í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó.
FRÉTTIR19.04.2024, 06:00
<p>Alice Walker er gengin til liðs við KR en hún kemur frá tyrkneska félaginu Eregli Belediyespor. Hún skrifaði undir eins árs samning.</p>
FRÉTTIR18.04.2024, 13:20
Grindavík hefur fengið Kristófer Leví Sigtryggsson í sínar raðir frá Gróttu. Hann er kominn með leikheimild og getur því verið í hópnum þegar Grindavík mætir ÍBV í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins í næstu viku.
Kristófer er fæddur árið 2000 og ekk hann í raðir Gróttu fyrir tímabilið 2022 eftir að hafa verið hjá Fylki. Það tímabilið var hann varamarkvörður Gróttu en í fyrra lék hann seinni hluta tímabilsins á láni hjá KFG.
FRÉTTIR18.04.2024, 10:30
Enska fótboltasambandið og enska úrvalsdeildin hafa náð samkomulagi um breytt fyrirkomulag á elstu og virtustu bikarkeppni heims, FA-bikarnum.
Frá og með næsta keppnistímabili verða leikir FA bikarsins ekki endurteknir frá og með fyrstu umferð. Úrvalsdeildarliðin koma inn í þriðju umferð.
Reglan hefur verið sú að ef leikur endar með jafntefli þá mætist liðin að nýju á heimavelli útiliðsins. Nú verður hinsvegar leikið til þrautar og liðin mætast ekki að nýju.
FRÉTTIR18.04.2024, 08:38
Miðvörðurinn Matheus Bissi hefur gert samning við Dalvík/Reyni í Lengjudeildinni. Hann er 33 ára gamall.
FRÉTTIR18.04.2024, 06:00
Þróttur V. hefur fengið Benjamín Jónsson til félagsins frá Fram en hann kemur á láni út tímabilið.
FRÉTTIR17.04.2024, 13:30
Rotherham United hefur ráðið Steve Evans sem stjóra eftir að Leam Richardson var rekinn.
Richardson var rekinn í morgun, tveimur vikum eftir að liðið féll í ensku C-deildina.
FRÉTTIR17.04.2024, 13:00
Eiður Atli Rúnarsson er genginn í raðir ÍBV á láni frá HK. Hann er annar leikmaðurinn sem ÍBV krækir í á þessum miðvikudegi því fyrr í dag kom Bjarki Björn Gunnarsson á láni frá Víkingi.
FRÉTTIR17.04.2024, 10:30
ÍBV hefur fengið Bjarka Björn Gunnarsson aftur á láni frá Víkingi Reykjavík. Bjarki var hjá ÍBV á síðasta tímabili en náði ekki að spila nema ellefu leiki vegna meiðsla.
Bjarki er 23 ára miðjumaður sem lék tvo leiki með Víkingi í Lengjubikarnum í vetur. Hann var svo á bekknum í leiknum gegn Val í Meistarakeppni KSÍ og gegn Stjörnunni í 1. umferð Bestu deildarinnar.
FRÉTTIR17.04.2024, 10:11
Lyngby tilkynnti rétt í þessu að Andri Lucas Guðjohnsen væri búinn að skrifa undir þriggja ára samning við danska félagið Lyngby. Félagið kaupir hann frá sænska félaginu Norrköping þar sem hann var samningsbundinn en hann hefur verið á láni hjá Lyngby í vetur.
Hann er markahæsti leikmaður Lyngby á tímabilinu, hefur skorað 11 mörk í 25 leikjum.