Patryk skiptir til Fjölnis (Staðfest)
Varnarmaðurinn Patryk Hryniewicki er búinn að skrifa undir samning við Fjölni eftir að hafa leikið fyrir uppeldisfélag sitt í Lengjudeildinni á undanförnum árum.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25094 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Varnarmaðurinn Patryk Hryniewicki er búinn að skrifa undir samning við Fjölni eftir að hafa leikið fyrir uppeldisfélag sitt í Lengjudeildinni á undanförnum árum.
Tottenham hefur staðfest að Igor Tudor muni stýra liðinu út tímabilið. Hann tekur við af Thomas Frank sem var rekinn eftir eftir aðeins tæplega átta mánuði í starfi. Síðasti leikurinn hans var 2-1 tap gegn Newcastle á dögunum.
Kvennalið Völsungs er búið að styrkja sig með landsliðskonu frá Gvatemala.
Stórstjörnurnar Rúben Neves og Kalidou Koulibaly hafa framlengt samninga sína við sádi-arabíska stórveldið Al-Hilal sem er að gera magnaða hluti undir stjórn Simone Inzaghi.
Sunderland er búið að reka Kristjaan Speakman úr starfi sínu sem yfirmaður fótboltamála eftir fimm ár hjá félaginu.
Dusan Brkovic hefur yfirgefið Leikni R. eftir að hafa leikið fyrir félagið í fyrrasumar.
Michael O'Neill er að taka við sem stjóri Blackburn Rovers en landsliðssóknarmaðurinn Andri Lucas Guðjohnsen spilar með liðinu í Championship-deildinni. O'Neill er landsliðsþjálfari Norður-Írlands og stýrir liðinu í umspilinu í mars. Liðið mætir Ítalíu í undanúrslitum og ef það vinnur leikur það gegn Wales eða Bosníu um sæti á HM. Taldar eru litlar líkur á að Norður-Írar komist á HM en ef það tekst mun hann stýra liðinu á mótinu.
KA hefur ráðið danskan markmannsþjálfara til starfa en sá heitir Nicklas Rulle. Hann er aðeins 26 ára gamall en hefur samt sem áður mikla reynslu af þjálfun.
Sigurpáll Sören Ingólfsson hefur verið lánaður frá KR í Ægi fyrir baráttuna í Lengjudeildinni næsta sumar. Ægir vann 2. deildina í fyrra og spilar því í Lengjudeildinni á komandi tímabili.
Eva Stefánsdóttir hefur skrifað undir samning við Fylki sem gildir út komandi tímabil. Eva er fædd árið 2005 en hún spilaði með Fylki á láni frá Val á síðustu leiktíð en hún er nú alfarið gengin til liðs við félagið. Hún spilaði 17 leiki og skoraði þrjú mörk í Lengjudeildinni síðasta sumar.
Einar Karl Ingvarsson hefur skrifað undir samning við Hauka. Hann kemur til félagsins frá nágrönnunum í FH. Einar Karl er 32 ára og er uppalinn í FH. Hann hefur einnig spilað með Fjölni, Val, Stjörnunni og Grindavík á ferlinum. Hann hefur alls spilað 489 leiki og skorað 71 mark.
Raheem Sterling er genginn í raðir Feyenoord en hann kemur til félagsins á frjálsri sölu eftir að hafa fengið samningi sínum við Chelsea rift á dögunum. Hann skrifar undir samning sem gildir út yfirstandandi tímabil. Feyenoord situr í 2. sæti hollensku deildarinnar, sautján stigum á eftir PSV. Sterling er 31 árs og á að baki 82 landsleiki fyrir Englnad. Á ferlinum hefur hann spilað með Liverpool, Manchester City, Chelsea og Arsenal.
Þróttur tilkynnti rétt í þessu að Liam Daði Jeffs hefði ákveðið að ganga til liðs við uppeldisfélagið ÍBV. Í tilkynningu ÍBV kemur fram að sóknarmaðurinn skrifi undir fjögurra ára samning í Eyjum. Liam Daði er fæddur árið 2006 og er fæddur í Vestmannaeyjum. Faðir hans er Ian Jeffs sem lék með ÍBV á sínum tíma. Móðir hans er Sigríður Ása Friðriksdóttir sem lék sömuleiðis með ÍBV á sínum tíma. Hann skoraði tíu mörk í 24 Lengjudeildarleikjum með Þrótti á síðasta tímabili. Fótbolti.net fjallaði um áhuga ÍBV á Liam Daða og tilboð í hann í byrjun desember. Liam Daði lék með ÍBV í Lengjudeildinni 2021 en hélt svo í Laugardalinn.
Bournemouth hefur formlega keypt Alex Jimenez frá AC Milan. Þessi tvítugi spænski bakvörður kom upphaflega á láni. Bournemouth var skyldugt til að kaupa hann eftir ákvæði og nú hefur Jimenez skrifað undir samning til 2031. Ákvæðið var tengt því að Bournemouth myndi spila honum í að minnsta kosti 45 mínútur í 50 leikja tímabilsins. Hann er með eitt mark og eina stoðsendingu í 23 leikjum með Bournemouth í öllum keppnum á þessu tímabili. Jimenez kom upp úr akademíu Real Madrid.
Thomas Tuchel hefur skrifað undir framlengingu sem landsliðsþjálfari Englands og gildir nýr samningur hans framyfir Evrópumótið 2028. Hann verður því áfram með enska landsliðið sama hvernig gengur á HM í sumar.
Nottingham Forest hefur rekið Sean Dyche eftir 114 daga í starfi. Evangelos Marinakis, eigandi félagsins, ákvað að rífa í gikkinn eftir markalaust jafntefli gegn botnliði Wolves í gær. Dyche tók við seint á síðasta ári og byrjaði vel en árangurinn hefur ekki verið frábær að undanförnu. Samkvæmt breska ríkisútvarpinu hefur Marinakis þegar hafið viðræður við Vitor Pereira, fyrrum stjóra Wolves, um að hann taki við.
Víðir Garði hefur bætt við sig þremur leikmönnum fyrir átökin sem eru framundan í 3. deild karla í sumar. Það eru þeir Ísak John Hill, Sebastian Arrocain og Adolf Þór Haraldsson.
Björgvin Brimi Andrésson hefur verið lánaður frá Íslandsmeisturum Víkings til uppeldisfélagsins Gróttu. Björgvin Brimi, sem er fæddur 2008, hjálpaði Gróttu að komast upp úr 2. deild í fyrra og var valinn efnilegasti leikmaður 2. deildar. Hann lék með KR í 3. og 4. flokki en sneri aftur á Nesið á síðasta ári og var lykilmaður í liði Gróttu sem endaði í 2. sæti 2. deildar. Kári Árnason, yfirmaður fótboltamála hjá Víkingi, sagði í hlaðvarpsþættinum <i>ChessAfterDark</I> í síðustu viku að Víkingur væri með möguleikann á því að kalla Björgvin til baka í sumarglugganum.
Thomas Frank hefur verið rekinn sem stjóri Tottenham, eftir aðeins tæplega átta mánuði í starfi. Síðasti leikur Danans var 1-2 tapið gegn Newcastle í gær. Tottenham er í 16. sæti, aðeins fimm stigum frá fallsvæðinu. Liðið er án sigurs í síðustu átta deildarleikjum og hefur aðeins unnið tvo af síðustu sautjan deildarleikjum.
Roberto De Zerbi hefur látið af störfum sem stjóri franska liðsins Marseille en í tilkynningu segir að um sameiginlega ákvörðun hans og félagsins sé að ræða. Marseille fékk 5-0 skell gegn Paris St-Germain í hans síðasta leik en liðið féll úr keppni í Meistaradeildinni nýlega eftir 3-0 tap gegn Club Brugge.