Víðir Garði hefur bætt við sig þremur leikmönnum fyrir átökin sem eru framundan í 3. deild karla í sumar.
Það eru þeir Ísak John Hill, Sebastian Arrocain og Adolf Þór Haraldsson.
Það eru þeir Ísak John Hill, Sebastian Arrocain og Adolf Þór Haraldsson.
Sebastian er 27 ára gamall hálfur Argentínumaður og hálfur Ítali, búsettur hér á landi, og kemur til félagsins frá RB. Hann spilaði sjö leiki með RB í 5. deild á síðustu leiktíð.
Ísak John hefur spilað stærstan hluta ferilsins með Víði en hann lék með Höfnum í 4. deild síðasta sumar og skoraði þar ellefu mörk í 14 leikjum. Hann hefur leikið með Víði í æfingaleikjum að undanförnu og skoraði meðal annars þrennu gegn Reyni Sandgerði á dögunum.
Adolf Þór gengur til liðs við félagið á láni frá Njarðvík. Adolf er fæddur árið 2007 og er að stíga sín fyrstu skref í meistaraflokki. Hann getur leyst bæði varnarstöður og miðjuna.
Víðir féll úr 2. deild karla síðasta sumar en stefnir eflaust á að reyna að komast aftur upp í sumar.
Athugasemdir



