Tuchel tekur ekki við Man Utd - Bayern og Chelsea vilja markvörðinn Verbruggen - Bayern vill Stones
banner
   fös 13. febrúar 2026 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Sigurpáll Sören frá KR í Ægi (Staðfest)
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sigurpáll Sören Ingólfsson hefur verið lánaður frá KR í Ægi fyrir baráttuna í Lengjudeildinni næsta sumar. Ægir vann 2. deildina í fyrra og spilar því í Lengjudeildinni á komandi tímabili.

Tilkynning KR:

Sigurpáll Sören Ingólfsson (2003) er farinn á lán til Knattspyrnufélagsins Ægis í Þorlákshöfn.

Sigurpáll Sören er uppalinn KR-ingur sem hefur leikið 14 meistaraflokksleiki fyrir félagið. Hann hefur verið varamarkvörður liðsins síðustu tímabil en hann lenti í því óhappi í júlí í fyrra að ökklabrotna á æfingu.

Við óskum Sigurpáli Sören góðs gengis í nýju verkefni!.

Athugasemdir
banner
banner
banner