Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25188 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR05.06.2023, 17:15

Milos tekur við stjórn Al Wasl (Staðfest)

Milos Milojevic hefur verið staðfestur sem nýr þjálfari Al Wasl í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Sagt er að hann muni fá um 388 milljónir íslenskra króna í árslaun hjá félaginu.

FRÉTTIR05.06.2023, 15:07

Chelsea kaupir 16 ára Ekvadora (Staðfest) - Kemur 2025

Chelsea hefur gengið frá kaupum á Kendry Paez fá Indipendiente del Valle. Paez er frá Ekvador og mun ganga í raðir Chelsea þegar hann verður 18 ára. Hann er 16 ára og verður 18 ára í maí 2025. Hann er örvfættur miðjumaður sem er uppalinn hjá Indpendiente og hefur leikið með yngri landsliðunum Ekvador. Hann byrjaði alla fóra leikina með U20 landsliðinu á HM í maí.

FRÉTTIR04.06.2023, 13:49

Stuðningsmenn kvöddu Arnór - Kominn í bann en spjaldið verður skoðað

Arnór Sigurðsson gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Norrköping, í bili hið minnsta. Hann lék gegn Brommapojkarna á heimavelli í gær og fékk gula spjaldið í leiknum. Það gula spjald þýðir að Arnór er kominn í leikbann og er því í banni gegn Djurgården á útivelli í næstu umferð. Það átti að vera síðasti leikur Arnórs fyrir Norrköping. Í kjölfarið lýkur svo árs löngum lánssamningi milli rússneska félagsins CSKA og Norrköping.

FRÉTTIR02.06.2023, 06:00

Ester Lilja í Fjölni (Staðfest)

Ester Lilja Harðardóttir er gengin í raðir Fjölnis frá HK en þetta kemur fram í tilkynningu frá Fjölni.

FRÉTTIR01.06.2023, 13:50

Heitinga rekinn frá Ajax (Staðfest)

John Heitinga hefur verið látinn fara frá Ajax eftir aðeins fjóra mánuði í starfi. Alfred Schreuder, sem tók við sem stjóri Ajax þegar Erik ten Hag tók við Manchester United fyrir ári síðan, var rekinn í janúar og Heitinga ráðinn í staðinn.

FRÉTTIR01.06.2023, 12:11

Messi yfirgefur PSG (Staðfest)

Lionel Messi spilar sinn síðasta leik fyrir PSG þegar liðið mætir Clermont í lokaumferð frönsku deildarinnar á laugardaginn. Þetta staðfesti Christophe Galtier, stjóri PSG, á fréttamannafundi í dag.

FRÉTTIR31.05.2023, 14:45

Dalot hjá Man Utd til 2028 (Staðfest)

Diogo Dalot er búinn að skrifa undir nýjan samning við Manchester United og er hann nú samningsbundinn fram á sumarið 2028. Hann hefur verið í viðræðum að undanförnu og var í dag tilkynnt að samkomulag væri í höfn. Möguleiki er á ársframlengingu til viðbótar við samninginn. Dalot kom til Man Utd árið 2018 og hefur leikið 107 leiki með liðinu í öllum keppnum, í þeim hefur hann skorað þrjú mörk. Hann er 24 ára hægri bakvörður sem keyptur var frá Porto. Tímabilið 2020-21 var hann á láni hjá AC Milan á Ítalíu.

FRÉTTIR31.05.2023, 13:00

Lerma yfirgefur Bournemouth (Staðfest) - Verður áfram í deildinni

Bournemouth staðfesti í dag að Jefferson Lerma myndi yfirgefa félagið í sumar þegar samningur hans við félagið rennur út. Lerma var á sínum tíma metkaup hjá Bournemouth þegar félagið greiddi Levante 25 milljónir punda fyrir miðjumanninn árið 2018. Lerma hefur síðan spilað 184 leiki fyrir enska félagið.

FRÉTTIR31.05.2023, 09:30

Brentford kaupir hollenskan markvörð (Staðfest)

Brentford hefur opinberað kaup á hollenska markverðinum Mark Flekken frá Freiburg í Þýskalandi. Þessi 29 ára leikmaður er keyptur á 11 milljónir punda og skrifar undir fjögurra ára samning í Lundúnum. Hann hjálpaði Freiburg að enda í fimmta sæti þýsku Bundesligunnar á nýliðnu tímabili. Hann hefur leikið fjóra landsleiki fyrir Holland.

FRÉTTIR30.05.2023, 14:15

KA menn bauluðu á Þórsarann - „Þá kom smá aukakikk inn í þetta"

Orri Sigurjónsson var í liði Fram þegar liðið heimsótti KA á Greifavellinum í gær. Orri er Þórsari sem hafði fyrir tímabilið leikið allan sinn feril með uppeldisfélaginu. Hann söðlaði um og sneri aftur til Akureyrar í gær. Stuðningsmenn KA tóku sig til á kafla og bauluðu þegar Orri fékk boltann. <i>Baulað á Þórsarann. Orri Sigurjónsson, fyrrum leikmaður Þórs, fær létt baul úr stúkunni þegar hann ber boltann upp,"</I> skrifaði Daníel Smári Magnússon sem textalýsti leiknum hér á Fótbolta.net. Orri var spurður út í það í viðtali eftir leik.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.