Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25203 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR24.01.2023, 15:27

Jökull enn og aftur til Exeter (Staðfest) - Fer á neyðarláni

Markvörðurinn Jökull Andrésson hefur gengið í raðir enska C-deildarliðsins Exeter á neyðarláni frá Reading vegna meiðsla markvarðarins Jamal Blackman. Lánssamningurinn gildir í sjö daga en þetta er í þriðja sinn á þremur árum sem Jökull er lánaður til Exeter. Liðið er um miðja deild í League One. Jökull er 21 árs og hefur leikið einn A-landsleik fyrir Ísland. Hann er samningsbundinn Reading til sumarsins 2024 en hann hefur enn ekki spilað opinberan leik fyrir aðallið félagsins. Fyrri hluta tímabilsins var Jökull frá vegna nárameiðsla en hann hefur einnig spilað á lánssamningi hjá Morecambe.

FRÉTTIR24.01.2023, 12:43

Besti leikmaður ÍR til Þróttar (Staðfest)

Þróttarar hafa fengið öflugan liðsstyrk fyrir komandi átök í Lengjudeildinni því miðjumaðurinn Jörgen Pettersen er genginn í raðir félagsins. Norðmaðurinn Jörgen lék í tvö tímabil hjá ÍR og var á lokahófi liðsins kosinn besti leikmaðurin af leikmönnum og þjálfurum.

FRÉTTIR24.01.2023, 12:18

Keflavík fær danskan markvörð (Staðfest)

Keflavík tilkynnti í dag um komu nýs markvarðar til félagsins. Mathias Rosenörn heitir hann og kemur á frjálsri sölu frá færeysku meisturunum í KÍ Klaksvík. <a href="https://www.fotbolti.net/news/20-01-2023/danskur-markmadur-ordadur-vid-keflavik-setti-met-a-sidasta-timabili" target="_blank">Fjallað var um áhuga Keflavíkur á markverðinum í síðustu viku.</a>

FRÉTTIR24.01.2023, 09:00

Frá Wolves í MLS-deildina (Staðfest)

Írski miðjumaðurinn Connor Ronan er genginn til liðs við Colorado Rapids í MLS-deildinni en hann kemur frá enska úrvalsdeildarfélaginu Wolves.

FRÉTTIR23.01.2023, 20:26

Lampard rekinn frá Everton (Staðfest)

Frank Lampard var í kvöld látinn taka poka sinn frá enska úrvalsdeildarfélaginu Everton eftir aðeins eitt ár í starfi. Þetta kemur fram á heimasíðu félagsins sem hefur loks staðfest fréttir enskra fjölmiðla frá því fyrr í dag.

FRÉTTIR23.01.2023, 20:10

Watford fær framherja á láni frá Benfica (Staðfest)

Enska B-deildarliðið Watford er staðráðið í því að komast aftur upp í ensku úrvalsdeildina en liðið hefur bætt við sig nokkrum öflugum leikmönnum í þessum glugga og í dag bættist sjötti leikmaðurinn við hópinn.

FRÉTTIR23.01.2023, 19:16

Jakub Kiwior til Arsenal (Staðfest)

Pólski varnarmaðurinn Jakub Kiwior gekk í dag frá skiptum sínum til enska úrvalsdeildarfélagsins Arsenal. Þetta kemur fram í tilkynningu enska félagsins í kvöld.

FRÉTTIR23.01.2023, 17:30

20 mest lesnu fréttir vikunnar - Juve refsað og risatilboð í Íslending

Hér að neðan má sjá lista yfir 20 vinsælustu fréttir Fótbolta.net í síðustu viku, raðað eftir hversu oft þær eru lesnar. Fimmtán stig voru dregin af Juventus, gert var risatilboð í íslenskan landsliðsmann og það er alltaf fjör í kringum enska boltann.

FRÉTTIR23.01.2023, 17:15

Hlín Heiðarsdóttir í Aftureldingu (Staðfest)

Hlín Heiðarsdóttir er gengin í raðir Aftureldingar og skrifar undir tveggja ára samning við félagið. Þetta tilkynnir Afturelding á samfélagsmiðlum sínum. Miðjumaðurinn kemur frá uppeldisfélaginu Fjölni þar sem hún hefur verið máttarstólpi í liðinu á síðustu árum.

FRÉTTIR23.01.2023, 17:00

Jhon Duran orðinn leikmaður Aston Villa (Staðfest)

Jhon Duran, 19 ára kólumbískur sóknarleikmaður, er formlega orðinn leikmaður Aston Villa en hann kemur frá Chicago Fire í bandarísku MLS-deildinni. <i>„Duran er spennandi og hæfileikaríkur ungur leikmaður sem hefur spilað fyrir A-landslið Kólumbíu,"</i> segir í tilkynningu Aston Villa.

FRÉTTIR23.01.2023, 16:02

Ronald Koeman tekinn aftur við Hollandi (Staðfest) - Lofar að spila 4-3-3

Ronald Koeman hefur verið ráðinn þjálfari hollenska landsliðsins að nýju, hann tekur við af Louis van Gaal sem lét þjálfaramöppuna upp í hillu eftir HM í Katar. Á fréttamannafundi í dag lofaði Koeman því að Holland myndi spila 4-3-3 leikkerfi undir sinni stjórn en ekki 5-3-2 leikkerfi eins og Van Gaal spilaði, við litla hrifningu fjölmiðla og almennings í Hollandi. Koeman stýrði Hollandi 2018-2020 en lét af störfum til að taka við Barcelona. Hann var svo rekinn þaðan 2021 og Xavi ráðinn til starfa. Fyrr á árinu varð hann bikarmeistari með Börsungum. Á stjóraferli sínum hefur Koeman meðal annars stýrt Everton, Southampton, Valencia og Ajax.

FRÉTTIR23.01.2023, 12:01

Kristján Atli í Þór (Staðfest)

Þórsarar tilkynntu rétt í þessu að Kristján Atli Marteinsson væri genginn í raðir félagsins og myndi leika með liðinu í Lengjudeildinni á komandi tímabili.

FRÉTTIR23.01.2023, 11:14

Rebekka í Val (Staðfest)

Rebekka Sverrisdóttir er gengin í raðir Vals en hún kemur frá uppeldisfélagi sínu KR. Hún spilar oftast í vörninni. Rebekka, sem fædd er árið 1992, þekkir ágætlega til á Hlíðarenda því hún lék með Val á árunum 2014-2016. Fyrir utan þau þrjú tímabil hefur Rebekka alla tíð leikið með KR.

FRÉTTIR23.01.2023, 06:00

Magðalena í Aftureldingu (Staðfest)

Magðalena Ólafsdóttir mun leika með Aftureldingu næstu tvö árin en þetta tilkynnti félagið á samfélagsmiðlum í gær.

FRÉTTIR22.01.2023, 13:53

Juranovic semur við Union (Staðfest)

Króatíski landsliðsbakvörðurinn Josip Juranovic er genginn til liðs við Union Berlín í Þýskalandi en hann kemur frá skoska stórveldinu Celtic.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.