Fotbolti.net
01.01.14 - 13:29
Hafliði Breiðfjörð

Bertrand Traore til Chelsea (Staðfest)

Traore í æfingaleik með Chelsea í sumar.

Traore í æfingaleik með Chelsea í sumar.

Canon

Mynd: Getty Images

Chelsea hefur gengið frá kaupum á táningnum Bertrand Traore en leikmaðurinn kemur frá Association Jeunes Espoirs De Bobo-Dioulasso í Burkina Faso.
Enska félagið hafi komist að samkomulagi um að fá leikmanninn sem er 18 ára gamall í október og gerir nú fjögurra ára samning við hann.

Þetta er gríðarlega efnilegur leikmaður sem spilaði sinn fyrsta landsleik aðeins 15 ára gamall.

Hann var á reynslu hjá Chelsea síðasta sumar og spilaði þrjá leiki í Asíuferð liðsins.

,,Það var góð reynsla að spila með öllum leikmönnum aðalliðsins og ég lærði helling af þeim,\" sagði Traore um þá ferð.

Hann var í hópi Burkina Faso sem fór á Afríkubikarinn árið 2012 og spilaði einn leik eftir að hafa komið inná sem varamaður.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.