01.01.16 - 14:00
Arnar Geir Halldórsson
Augusto Fernandez til Atletico Madrid (Staðfest)

Augusto Fernandez

Mynd: Atletico Madrid

Augusto Fernandez

Mynd: Atletico Madrid
Atletico Madrid hefur staðfest kaupin á Augusto Fernandez sem kemur til félagsins frá Celta Vigo.
Kaupverðið er óuppgefið en þessi 29 ára gamli miðjumaður gerir fjögurra ára samning við Madridarliðið.
Augusto Fernandez hefur skorað 10 mörk í 122 leikjum með Celta Vigo en þar hefur hann leikið frá árinu 2012 eftir að hafa leikið með River Plate og Velez Sarsfield í heimalandinu, Argentínu.
Hann á 9 landsleiki að baki fyrir A-landslið Argentínu og var hluti af hópnum þegar liðið vann til silfurverðlauna á HM í Brasilíu 2014.