01.01.16 - 18:23
Arnar Geir Halldórsson
Juan Manuel Iturbe til Bournemouth (Staðfest)

Mættur í ensku úrvalsdeildina

Mynd: Getty Images

Mættur í ensku úrvalsdeildina

Mynd: Getty Images
Nýliðar Bournemouth hefja janúargluggann af krafti því liðið hefur gengið frá samningum við argentíska ungstirnið Juan Manuel Iturbe.
Iturbe kemur til félagsins að láni frá AS Roma og gildir samningurinn út leiktíðina.
Þessi 22 ára gamli kantmaður hefur ekki náð að festa sig í sessi hjá ítalska stórliðinu sem borgaði 25 milljónir evra fyrir kappann fyrir einu og hálfu ári síðan.
Hann hefur skorað eitt mark í tólf leikjum í Serie A í vetur en í níu af þessum tólf leikjum hefur Iturbe komið inn af bekknum.
Bournemouth er í harðri fallbaráttu, þrem stigum fyrir ofan fallsæti en liðið hefur möguleika á að kaupa Iturbe að lánstímanum loknum.