01.01.16 - 12:00
Arnar Geir Halldórsson
Katrín Ómarsdóttir til Doncaster (Staðfest)

Katrín Ómarsdóttir

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Katrín Ómarsdóttir

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Íslenska knattspyrnukonan Katrín Ómarsdóttir hefur fært sig um set í enska boltanum.
Katrín hefur undanfarin ár leikið fyrir Liverpool í ensku úrvalsdeildinni en hefur nú samið við lið Doncaster Rovers sem leikur í sömu deild.
Doncaster eru nýliðar í efstu deild eftir að hafa lent í 2.sæti B-deildarinnar á síðustu leiktíð.
Hin þrautreynda enska landsliðskona Becky Easton fylgir Katrínu frá Liverpool til Doncaster en Easton er enn í fullu fjöri þrátt fyrir að vera á 42. aldursári.
Katrín yfirgefur Liverpool eftir þrjú ár hjá félaginu en hún varð tvívegis Englandsmeistari með liðinu.