01.01.22 - 12:20
Brynjar Ingi Erluson
Ajax fær Brobbey aftur frá Leipzig (Staðfest)

Brian Brobbey verður á láni hjá Ajax út leiktíðina

Mynd: Getty Images

Brian Brobbey er genginn til liðs við Ajax á láni frá þýska félaginu RB Leipzig.
Brobbey er aðeins 19 ára gamall en hann gekk til liðs við Leipzig á frjálsri sölu frá Ajax í sumar.
Framherjinn hefur ekki farið neitt sérstaklega vel af stað með Leipzig og ekki enn tekist að skora í fjórtán leikjum.
Ajax hóf viðræður við Leipzig í desember um að fá Brobbey aftur til félagsins og voru skiptin staðfest í dag.
Hann verður á láni út leiktíðina en hann skoraði sex mörk í nítján leikjum með Ajax á síðustu leiktíð.