Fotbolti.net
01.01.22 - 10:34
Brynjar Ingi Erluson

Everton kaupir Mykolenko frá Dynamo Kiev (Staðfest)

Vitaliy Mykolenko er mættur til Everton

Vitaliy Mykolenko er mættur til Everton

Canon

Mynd: Everton

Enska úrvalsdeildarfélagið Everton gekk í dag frá kaupum á úkraínska vinstri bakverðinum Vitaliy Mykolenko frá Dynamo Kiev.
Mykolenko, sem er 22 ára gamall, á 21 leik fyrir úkraínska landsliðið og hjálpaði liðinu að komast í 8-liða úrslit Evrópumótsins í sumar.

Hann vann þá deildina með Kiev á síðustu leiktið auk þess sem hann hefur unnið úkraínska bikarinn tvisvar.

Þetta eru fyrstu kaup Everton í janúar en félagið greiðir 18 milljónir punda fyrir þjónustu hans og skrifaði hann í dag undir fimm ára samning.

„Það er stórt og mikilvægt skref í lífi mínu að fara til Everton. Mig hefur alltaf dreymt um að spila í ensku úrvalsdeildinni því uppruni fótboltans má rekja þangað, þannig það hentar leik mínum vel," sagði Mykolenko.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.