01.01.22 - 19:10
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Kovac rekinn frá Mónakó (Staðfest) - Stutt tilkynning

Niko Kovac.

Mynd: Getty Images

Niko Kovac.

Mynd: Getty Images
Mónakó, sem er í frönsku úrvalsdeildinni, hefur rekið þjálfarann Niko Kovac úr starfi.
Þetta var gefið út í kvöld. Í tilkynningu frá félaginu segir að Kovac hafi verið látinn vita um ákvörðun félagsins síðasta fimmtudag. Tilkynningin á heimasíðu félagsins er afar stutt og hnitmiðuð. Kovac er ekki þakkað fyrir vinnu sína í tilkynningunni.
Króatíski þjálfarinn tók við Mónakó sumarið 2020. Undir hans stjórn endaði liðið í þriðja sæti frönsku deildarinnar á síðustu leiktíð. Þessa stundina er liðið í sjötta sæti. Sögur eru um að samband Kovac við nokkra lykilmenn liðsins hafi ekki verið gott.
Kovac er fyrrum þjálfari króatíska landsliðsins, Eintracht Frankfurt og Bayern München. Hann er fimmtugur.
Það er talið líklegt að Philippe Clement, sem er núna þjálfari Club Brugge í Belgíu, taki við Mónakó.