Fotbolti.net
01.02.13 - 19:42
Daníel Freyr Jónsson

Andrea Ýr spilar með Selfoss í sumar (Staðfest)

Andrea Ýr Gústavsdóttir.

Andrea Ýr Gústavsdóttir.

Canon

Mynd: Eyjafréttir

Andrea Ýr Gústavsdóttir er genginn í raðir Selfoss og mun hún leika með liðinu í Pepsi-deildinni í sumar.
Andrea kemur frá ÍBV þar sem hún lék 15 leiki í Pepsi-deildinni síðasta sumar. Áður hafði hún leikið með Breiðablik og Aftureldingu, en hún er uppalin hjá Val.

Þá á hún að baki leiki með yngri landsliðum Íslands, en hún er fjölhæfur leikmaður sem getur spilað víðsvegar á vellinum.

Sunnlenska.is greinir einnig frá því að besti leikmaður Selfyssinga síðasta sumar, hin bandaríska Valorie O\'Brien, muni leika aftur með liðinu næsta sumar.

Gunnar Rafn Borgþórsson, þjálfari liðsins, staðfesti einnig að félagið myndi líklega styrkja sig enn frekar fyrir sumarið.

Heimild: Sunnlenska

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.