01.02.14 - 17:54
Magnús Már Einarsson
Arnar Már í Stjörnuna (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Vilhjálmur Siggeirsson

Arnar Már Björgvinsson hefur gengið aftur í raðir Stjörnunnar en hann hefur skrifað undir þriggja ára samning við félagið.
Árið 2009 skaust Arnar Már fram á sjónarsviðið þegar hann skoraði níu mörk í fimmtán leikjum með Stjörnunni í Pepsi-deildinni.
Þessi 23 ára gamli kantmaður gekk til liðs við Breiðablik fyrir tímabilið 2011 en í ár var hann fyrri hluta tímabils á láni hjá Víkingi Ólafsvík.

Undanfarnar vikur hefur Arnar æft með Stjörnunni auk þess að spila með liðinu í Fótbolta.net mótinu. Hann hefur nú skrifað undir þriggja ára samning.
,,Arnar mun án efa styrkja lið Stjörnunnar með hraða sínum og áræðni. Félagið býður Arnar velkominn heim og væntir mikils af honum,\" segir á heimasíðu Stjörnunnar.