Fotbolti.net
01.02.14 - 14:53
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Cellino kaupir Leeds United (Staðfest)

Cellino kaupir Leeds United (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Massimo Cellino er eigandi Cagliari og nú er staðfest að hann hefur ákveðið að kaupa 75% hlut í Leeds United og tekur við stjórn félagsins þegar leyfi gefst.

Á föstudaginn var Brian McDermott, knattspyrnustjóri Leeds, rekinn af Cellino sem sagðist ekki þurfa stjóra heldur þjálfara.
Talið er að Gianluca Festa, fyrrverandi varnarmaður Middlesbrough og aðstoðarþjálfari Cagliari muni taka við stjórn á félaginu.

,,GFH Capital staðfestir að það hefur samþykkt að selja 75% hlut í félaginu til Eleonora Sport Ltd, fyrirtækis í eigu Cellino fjölskyldunnar,\" segir í yfirlýsingu.

,,Cellino fjölskyldan kemur í enska knattspyrnu með það að markmiði að styðja við Leeds United fjárhagslega og koma félaginu í deild þeirra bestu.\"

Stuðningsmenn Leeds voru ekki par sáttir með ákvörðun Cellino að reka McDermott og skapaðist mikill usli á Elland Road á gluggadeginum þar sem stuðningsmenn félagsins vildu ekki leyfa Cellino að yfirgefa svæðið án útskýringa á brottrekstri stjórans.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.