01.02.14 - 08:00
Magnús Már Einarsson
Leiknir F. fær Spánverja frá ÍA (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Ingunn Hallgrímsdóttir

Leiknir Fáskrúðsfirði hefur fengið liðsstyrk fyrir átökin í 3. deildinni í sumar en Spánverjarnir Hector Pena Bustamante og Pedro Monzon hafa gengið í raðir félagsins.
Á heimasíðu Leiknis kemur einnig fram að von sé á einum Spánverja til viðbótar á næstuni.

Hector, sem er miðvörður, spilaði níu leiki með ÍA í Pepsi-deildinni síðastliðið sumar eftir að hafa komið til félagsins í júlí.
Pedro er miðvallarleikmaður og hefur leikið í neðri deildum á Spáni auk þess að vera menntaður einkaþjálfari.
Leiknir Fáskrúðsfirði endaði í sjötta sæti í þriðju deildinni á síðasta tímabili.
Á myndinni hér til hliðar má sjá Hector í leik með ÍA gegn Breiðabliki síðasta sumar.

Heimild: Heimasíða Leiknis F.