Fotbolti.net
01.02.14 - 09:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Paolo Cannavaro seldur til Sassuolo (Staðfest)

Paolo Cannavaro seldur til Sassuolo (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Miðvörðurinn Paolo Cannavaro hefur ekki fengið að spila mikið hjá Napoli undir stjórn Rafael Benitez og hefur hann nú verið seldur frá félaginu.

Cannavaro er elskaður í Napoli enda fyrirliði liðsins til margra ára en leikmaðurinn orðinn 32 ára og ekki pláss fyrir hann lengur í byrjunarliðinu.
Kaupverð er ekki gefið upp en Cannavaro var seldur til Sassuolo sem eru nýliðar í deildinni og í fallbaráttu.

,,Napoli mun alltaf vera í hjarta mínu, það verður erfitt að spila ekki fyrir Napoli,\" sagði Cannavaro við Radio Kiss Kiss.

,,En ég vil þakka þeim Svartgrænu (Neroverdi, gælunafn Sassuolo) fyrir tækifærið.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.