Fotbolti.net
01.02.14 - 00:18
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Samantekt á gluggadegi - 42 (Staðfest) svigar

Samantekt á gluggadegi - 42 (Staðfest) svigar
Canon

Mynd: Getty Images

Lokadagur félagsskiptaglugga vetrarins er liðinn þó að eflaust sé hægt að búast við nokkrum staðfest svigum í fyrramálið.

Það voru ekki sérlega grípandi félagsskipti þennan glugga en mörg voru þau, svo mörg að kerfið hjá FIFA var við það að hrynja fyrr í kvöld.
Það voru, skemmtilega, 42 staðfest svigar á vefsíðu Fótbolta.net á lokadegi gluggans þar sem nokkrir þeirra voru vægast sagt merkilegir.

Kaup Cardiff á Andreas Cornelius eru án mikils vafa ein stærstu mistök tímabilsins eftir að leikmaðurinn ungi var seldur aftur til Kaupmannahafnar 6 mánuðum eftir að hafa komið til Wales á metfé.

Philippe Senderos og Adel Taarabt tókst á einhvern ótrúlegan hátt að koma sér til Valencia á Spáni og AC Milan á Ítalíu á lokadegi gluggans. Umboðsmönnum þeirra hefur verið hrósað í hástert á veraldarvefnum enda erfitt að sjá hvers vegna mennirnir voru fengnir til svo virtra liða. Til gamans má geta að á vefsíðu Valencia var birt mynd af Brede Hangeland í stað Senderos þegar koma hans var tilkynnt.

Harry Redknapp og Tony Pulis voru konungar lokadagsins þar sem þeir fengu fimm menn til Queens Park Rangers, í toppbaráttu Championship, og Crystal Palace, í fallbaráttu Úrvalsdeildarinnar. Pulis afrekaði það að fá Tom Ince lánaðan frá Blackpool þar sem miklar getgátur voru um hvar kantmaðurinn knái myndi enda.

Stærsta dramatík lokadagsins var þó ekki kringum félagsskipti heldur hjá Leeds United þar sem allt virðist vera í tómu tjóni. Brian McDermott var rekinn úr knattspyrnustjórastólnum við litla hrifningu stuðningsmanna félagsins sem hleyptu Massimo Cellino, eiganda Leeds, ekki burt frá Elland Road í nokkra tíma eftir fregnirnar. Stuðningsmenn Leeds geta þó glaðst yfir því að Ross McCormack ákvað að vera áfram hjá félaginu.

Kim Källström var lánaður til Arsenal, Hernanes seldur til Inter og Pablo Daniel Osvaldo lánaður til Juventus, frá Southampton, sem verður að teljast frekar óvenjulegt. Brasilíski miðjumaðurinn Diego var lánaður til Atletico Madrid, Pablo Armero til West Ham og Fulham opnaði budduna fyrir Kostas Mitroglou sem fyllir skarð Dimitar Berbatov sem er nú kominn til Monaco í frönsku toppbaráttunni. Það var nóg að gera hjá Fulham sem fékk einnig hinn gríðarlega reynda Johnny Heitinga frá Everton og Lewis Holtby lánaðan frá Tottenham.

Hinn efnilegi Kurt Zouma var keyptur til Chelsea á rúmlega 12 milljónir punda. Seydou Keita kom til Valencia í stað Ever Banega sem var lánaður til Argentínu. Wilfried Zaha var þá lánaður til Cardiff.

Þá má einnig taka fram að Julian Draxler og Yehven Konoplyanka voru nefndir í gríð og erg þar sem þeir voru orðaðir við Arsenal og Liverpool en ekkert varð úr þeirra félagsskiptum.

Björn Bergmann Sigurðarson var lánaður til Molde í Noregi út tímabilið og Stefán Gíslason er genginn til liðs við Breiðablik á meðan Nichlas Rohde hefur verið lánaður til AB svo hann kemur ekki aftur til Blika fyrr en samningur hans rennur út næsta sumar, vilji hann ekki leita á önnur mið.
Harry Redknapp tók bílaviðtöl að vanda. Myndin er ekki af Harry Redknapp.

Harry Redknapp tók bílaviðtöl að vanda. Myndin er ekki af Harry Redknapp.

Canon

Mynd: Twitter

Samantekt á gluggadegi - 42 (Staðfest) svigar
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.