Fotbolti.net
01.02.14 - 07:30
Ívan Guðjón Baldursson

Tveir leikmenn frá Man Utd bætast við hjá Fulham (Staðfest)

Ryan Tunnicliffe gegn Newcastle

Ryan Tunnicliffe gegn Newcastle

Canon

Mynd: Getty Images

Ryan Tunnicliffe og Larnell Cole eru komnir til Fulham sem þýðir að félagið fékk til sín fimm leikmenn á lokadegi janúargluggans, rétt eins og Crystal Palace.

Tvemenningarnir koma frá Manchester United og voru keyptir til félagsins en ekki er gefið upp hversu mikið Fulham þurfti að borga.
Tunnicliffe er 21 árs gamall miðjumaður sem hefur verið lánaður til Peterborough United og Ipswich Town síðustu tímabil.

Cole er ári yngri en Tunnicliffe og spilar einnig sem miðjumaður. Hingað til hefur hann aðeins leikið fyrir varalið og unglingalið Man Utd.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.