01.02.16 - 20:33
Ívan Guðjón Baldursson
Adalberto Penaranda til Watford (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Adalberto Penaranda er kominn til Watford. Penaranda er búinn að gera samning við félagið til 2020 og kemur frá ítalska systurfélagi Watford, Udinese.
Penaranda er í 26. sæti á lista yfir 50 bestu táninga heims samkvæmt ítalska miðlinum La Gazzetta dello Sport.

Penaranda er 18 ára gamall framherji og á 8 landsleiki að baki fyrir U20 ára landslið Venesúela.
Penaranda kom til Udinese síðasta sumar og var strax lánaður til annars systurfélags, Granada á Spáni, þar sem hann hefur gert fjögur mörk í átta leikjum á tímabilinu.
Penaranda verður á láni hjá Granada þar til sumarið 2017.