Fotbolti.net
01.02.16 - 18:08
Ívan Guðjón Baldursson

Alexander Buttner lánaður til Anderlecht (Staðfest)

Alexander Buttner lánaður til Anderlecht (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Alexander Büttner er kominn í belgísku deildina og mun vera þar á lánssamning hjá Anderlecht út tímabilið.

Buttner var á mála hjá Manchester United í tvö ár áður en hann var seldur til Dynamo Moscow.
Hjá Dynamo hefur Buttner ekki fengið mikinn spilatíma og hefur því ekki verið að spila byrjunarliðsbolta síðan hann var hjá Vitesse í hollensku deildinni fyrir fjórum árum.

Buttner er vinstri bakvörður sem getur einnig leikið á kantinum og á sjö leiki að baki fyrir unglingalandslið Hollendinga.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.