Fotbolti.net
01.02.16 - 18:41
Magnús Már Einarsson

Alfreð Finnbogason til Augsburg á láni (Staðfest)

Alfreð verður í treyju númer 27 hjá Augsburg.

Alfreð verður í treyju númer 27 hjá Augsburg.

Canon

Mynd: Augsburg

Kvennalandslið
Þýska félagið Augsburg hefur fengið Alfreð Finnbogason á láni frá Real Sociedad út tímabilið.

Augsburg ætlaði fyrst að kaupa Alfreð en á endanum var um lánssamning að ræða. Alfreð fagnar 27 ára afmæli sínu í dag og hann mun leika í treyju númer 27 hjá Augsburg.
„Það er draumur að fá tækifæri til að spila í Bundesligunni. Ég hlakka til að takast á við þessa áskorun hér hjá FC Augsburg,\" sagði Alfreð við heimasíðu Augsburg.

Alfreð kom til Real Sociedad frá Heerenveen á 7,5 milljónir evra eftir að hann varð markahæsti leikmaðurinn í Hollandi tímabilið 2013/2014.

Alfreð skrifaði undir fjögurra ára samning á Spáni og á því tvö og hálft ár eftir af honum.

Í vetur hefur Alfreð verið á láni hjá Olympiakos en þar hefur hann mátt þola mikla bekkjarsetu. Hann skoraði hins vegar eftirminnilegt sigurmark fyrir Olympiakos geg Arsenal í Meistaradeildinni fyrir áramót.

Augsburg er 12. sæti af 18 liðum í þýsku Bundesligunni en liðið er með 21 stig eftir 19 umferðir.

Liðið hefur verið í framherjaleit en Raúl Marcelo Bobadilla er eini framherjinn í leikmannahópnum sem hefur komist á blað á tímabilinu. Bobadilla er með þrjú mörk sem dugir til að verða markahæsti leikmaður Augsburg í Bundesligunni í vetur.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.