Fotbolti.net
01.02.16 - 19:21
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Andrija Balic til Udinese (Staðfest)

Balic í leik með Hajduk gegn Dinamo Zagreb.

Balic í leik með Hajduk gegn Dinamo Zagreb.

Canon

Mynd: Getty Images

Króatíska ungstirnið Andrija Balic er genginn til liðs við Udinese í ítölsku A-deildinni.

Balic er aðeins 18 ára gamall en hefur leikið 32 deildarleiki fyrir Hajduk Split og hefur leikið 21 landsleik fyrir yngri landslið Króata.
Balic er búinn að skrifa undir samning til 2020 við ítalska félagið sem er sex stigum fyrir ofan fallsvæðið.

„Udinese staðfestir komu króatíska miðjumannsins Andrija Balic til félagsins frá Hajduk Split,\" stendur í yfirlýsingu frá Udinese.

„Leikmaðurinn er búinn að skrifa undir samning til 30. júní 2020 og mun klæðast treyju númer 99.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.