Fotbolti.net
01.02.16 - 21:06
Magnús Már Einarsson

Arsenal lánar Yaya Sanogo til Charlton (Staðfest)

Arsenal lánar Yaya Sanogo til Charlton (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Charlton Athletic hefur fengið framherjann Yaya Sanogo á láni frá Arsenal út tímabilið.

Jóhann Berg Guðmundsson spilar með Charlton en liðið er í næstneðsta sæti í ensku Championship deildinni í augnablikinu.
Sanogo er 23 ára gamall en hann kom til Arsenal frá Auxerre árið 2013. Hann hefur fengið nokkra sénsa með aðalliði Arsenal en aldrei náð að festa sig í sessi.

Síðari hlutann á síðasta tímabili var Sanogo á láni hjá Crystal Palace og fyrri hlutann á þessu tímabili var hann á láni hjá Ajax þar sem hann náði ekki að skora.

Hann mun nú reyna að finna markaskóna hjá Charlton og hjálpa liðinu í fallbaráttunni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.