01.02.16 - 21:33
Ívan Guðjón Baldursson
Augsburg lánar Matavz til Genoa (Staðfest) - Pláss fyrir Alfreð

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images

Slóvenski framherjinn Tim Matavz hefur verið lánaður til Genoa út tímabilið, en hann er samningsbundinn Augsburg.
Alfreð Finnbogason gekk til liðs við Augsburg fyrr í kvöld og ljóst að krafta Matavz er ekki lengur þarfnast, en hann hefur gert þrjú mörk í 27 deildarleikjum á einu og hálfu ári hjá félaginu.

Markaskorun Matavz, sem er 27 ára, hefur þó verið talsvert betri með slóvenska landsliðinu þar sem hann hefur gert 10 mörk í 31 leik.
Matavz braust fram í sviðsljósið þegar hann gerði 34 mörk í 84 deildarleikjum með Gröningen og svo 24 mörk í 70 deildarleikjum hjá PSV Eindhoven.